flugfréttir

Minna rætt um malasísku vélina á samfélagsmiðlum

- 92 prósent færri umræður á Twitter og fréttum fækkar til muna

1. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 01:16

Umræður um hvarf malasísku farþegaþotunnar eru í lágmarki þessa daganna á Twitter

Umtalið um leitina að malasísku farþegaþotunni hefur dregist saman til muna ef marka má þær stöðuuppfærslur sem hafa átt sér stað á samskipamiðlinum Twitter og það sama má segja um fréttaumfjöllun.

Samkvæmt grein á vefmiðlinum Mashable segir að á þeim 24 dögum síðan að malasíka farþegaþota hvarf af radar hefur umræðan náð lágmarki. Síðastliðinn sunnudag voru 170 þúsund notendur sem minntust á flug MH370 á Twitter samkvæmt tölfræðilegum útreikningum frá fyrirtækinu Sysomos.

Um er að ræða 92% færri umræður frá því 24. mars þegar 2.3 milljónir Twitter-notenda deildu skoðunum sínum um hvarfið þann dag sem forsetisráðherra Malaysíu tilkynnti að stærðfræðilegir útreikningar frá breska gervihnattarfyrirtækinu Inmarsat bentu til þess að vélin hefði farist í Suður-Indlandshafi og að enginn hefði lifað slysið af.

Þá hefur fréttaumfjöllun varðandi hvarf vélarinnar dregist saman um 64%. Þann 24. mars, er nýjar upplýsingar frá gervitungli sýndu að vélin hefði farið í sjóinn í Indlandshafi, birtust um 35,715 fréttir um allan heim um malasísku vélina en sl. sunnudag voru einungis 12.832 fréttir um vélina og rétt um 5.000 fréttir í gær, 31. mars.

Mjög lítið hefur komið fram af áreiðanlegum vísbendingum og virðist sem áhugi fólks á að fylgjast með fréttum af leitinni hafi minnkað til muna frá því á fyrstu tveimur vikunum.

Kenningum um hvað varð af vélinni skiptir tugum, vísbendingar hafa verið margar, áreiðanlegar vísbendingar um afdrif vélarinnar eru tvær sem hafa komið fram og sannanir eru engar enn sem komið er.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga