flugfréttir
Leitin er mjög krefjandi og gæti tekið margar vikur
Áhöfn nýsjálenska flughersins ræða leitaraðgerðir
Tíu flugvélar og níu skip hafa leitað í dag að malasísku vélinni sem er einu skipi færra en í gær og er leitað á svæði sem er 64 þúsund ferkílómetrar að stærð.
Þá er skipið Ocean Shield á leiðinni á leitarsvæðið með sérhæfðan leitarbúnað, Towed Pinger Locator, og
neðansjávarkafbátavélmenni en á meðan hafa Bandaríkin og Malaysía fundað um möguleika
á að hefja neðansjávarleit með sérstökum djúpsjávarleitartækjum.
Hishammuddin Hussein, forsetisráðherra Malaysíu, mun ekki halda sinn daglega blaðamannafund þar
sem hann er nú á leið til Hawaii á fund með bandarískum yfirvöldum og öðrum aðilum um fleiri
möguleika til leitaraðgerða og þ.á.m. verður rætt um að færa leitina að vélinni neðansjávar.
Angus Houston, yfirmaður ástralska flughersins, sagði á blaðamannafundi í dag að leitin
væri mjög flókinn og krefjandi þar sem engar upplýsingar eru til staðar um nákvæman stað
til að leita á og gæti leitin því tekið margar vikur.
Möguleiki er á því að breytt verði um leitarsvæði og leitað á nýjum stöðum ef ekkert brak finnst á næst dögum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.