flugfréttir

Rannsókn FBI á flugleik flugstjórans lokið

- "Það er ekkert við flugstjórann sem virðist vera grunsamlegt"

3. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 06:19

Ekkert grunsamlegt fannst í Flight Simulator flugleik flugstjórans

Formleg rannsókn á Flight Simulator flugleik malasíska flugstjórans Zaharie Ahmad Shah er lokið að hálfu bandarísku alríkislögreglunnar FBI og fannst ekkert grunsamlegt við leikinn sem nær að bendla hann við glæpsamlegt athæfi.

Samkvæmt fréttum ABC News var rannsókn FBI á flugleiknum síðasta hálmstráið í rannsókn á öllum þeim sem voru um borð, bæði áhöfn og farþegum.

Grunur lék á að flugleikjatölva flugstjórans gæti varpað ljósi á hvarf vélarinnar þar sem í ljós kom að hann hafði æft ýmis flug og lendingar og sérstaklega vakti athygli að hann hafði eytt einhverjum vistuðum flugferðum úr leiknum en harði diskur tölvunnar var sendur til FBI í Quantico í Virginíu til rannsóknar.

"Það er akkurat ekkert við flugstjórann sem virðist vera grunsamlegt og núna eru engar vísbendingar sem benda til að einhver í áhöfn vélarinnar hafi haft eitthvað glæpsamlegt tilræði í huga", segir bandarísk yfirvöld.

Heimildarmenn segja að þetta skapi þörf fyrir ferskar vísbendingar til að finna flugvélina sem á morgun hefur verið týnd í fjórar vikur.

Einnig er verið er að rannsaka hvort að flugvélamaturinn um borð í malasísku farþegaþotunni hafi verið eitraður.

Þetta kemur fram í frétt The Sydney Morning Herald en þar kemur fram að rannsóknin beinist nú m.a. að flugvallareldhúsinu sem útbjó máltíðirnar fyrir farþegana um borð í vélinni áður en hún fór í loftið þann 7. mars.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga