flugfréttir

Rafhlöðurnar gætu hafa tæmst fyrir viku síðan

- Framleiðandinn átti að skipta um nýjar rafhlöður í svörtu kössunum árið 2012

4. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 20:46

Fyrirtækið Dukane Seacom hefur framleitt neyðarsenda í flugritum og hljóðritum um borð í faregaþotum í 30 ár

Fyrirtækið sem framleiðir neyðarsendana á svörtu kössum malasísku farþegaþotunnar hefur sínar efasemdir um hvort að þeir séu enn að senda frá sér hljóðbylgjur þar sem Malaysia Airlines sendi þá ekki til þeirra til rafhlöðuskipta árið 2012 eins og til stóð.

Fyrirtækið Dukane Seacom í Sarasota í Flórída framleiðir neyðarsendana en Anish Patel, forstjóri fyrirtækisins, segir að neyðarsendarnir í vélinni voru framleiddir árið 2005 og átti Malaysia Airlines að senda þá inn til yfirhalningar árið 2012 en það var aldrei gert.

Samkvæmt fréttum CNN segir Patel að það gæti verið að flugfélagið hafi skipt sendunum út fyrir eldri senda, þeir gætu hafa látið eitthvað annað fyrirtæki gera það eða sett gamlar rafhlöður í þá sem hafa þá styttri líftíma.

"Ef sömu rafhlöðurnar voru enn í svörtu kössunum með flugritunum og hljóðritunum þá þýðir það að líftími þeirra hefur verið 20 til 25 dagar í stað 30 daga", segir Patel.

"Malaysia Airlines hefur hingað til alltaf sent búnaðinn til okkar en þeir hafa ekki gert það í nokkur ár núna. Þeir gætu hafa sent þá eitthvert annað, gert þetta sjálfir eða fræðilega gætu þeir enn verið að nota 8 ára gamlar rafhlöður".

Malaysia Airlines svaraði ekki fyrirspurn CNN í dag varðandi málið en flugfélagið hafði áður sagt að þeim væri ekki kunnugt um að neitt athugavert hefði verið við svörtu kassa vélarinnar.

Hljóðið sem kemur frá búnaðinum, sem mannseyrað nær ekki að greina, hættir þó ekki fyrirvaralaust eftir 30 daga, heldur dofnar það hægt og rólega að sögn Patel.

Bandaríska fyrirtækið Honeywell framleiddi svörtu kassana í vél Malaysia Airlines sem leitað hefur verið að. Steven Brecken, talsmaður fyrirtækisins, staðfestir að Malaysia Airlines sendi hljóðritann, sem heldur utan um samtöl flugmannana, til fyrirtækisins árið 2006 og gáfu þeir því gaum að neyarsendirinn myndi renna út árið 2012.

Árið 2007, ári síðar, sendi Malaysia Airlines flugrita vélarinnar til Honeywell eftir að upp kom viðvörunarljós um mögulega bilun í búnaðinum - "Við fórum yfir flugritann og framkvæmdum prófanir og fundum enga bilun og sendum hann aftur til flugfélagsins", segir Brecken.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga