flugfréttir

"Ef þeir greindu rétt merki þá er það frá svarta kassanum"

- "Þessi tíðni var valin til að tryggja tærar hljóðbylgjur frá svörtu kössunum"

5. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 16:35

Ekki hefur verið staðfest hvort að púlsmerki, sem kínverskt skip náði að greina í dag, sé frá svörtu kössunum

Ekki ber séfræðingum saman um hvort að púlsmerkið, sem kínverska skipið Haixun 01 náði að greina með búnaði sínu á leitarsvæðinu í dag, sé frá svarta kassa malasísku farþegaþotunnar eða hvort um sé að ræða villandi hljóð frá t.a.m. sjávarspendýrum á borð við höfrunga eða hvali.

Charitha Pattiaratchi, prófessor í haffræðum við háskólann í Western Australia, segir að púlsmerkið geti aðeins komið frá einhverskonar tæki sem maðurinn hefur framleitt.

"Rigning gefur frá sér merki á annarri bylgjutíðni, hvalir gefa frá sér merki á enn annarri tíðni - Ástæðan að svarti kassinn er stilltur á þessa tíðni er til að auðvelda að hægt sé að nema hljóðmerkin sem koma frá honum sem geta borist langa vegalengd".

"Ef þeir hafa náð að greina merki á þessari tíðni þá er þetta sennilega að koma frá svarta kassanum", segir Parriaratchi.

Anish Patel, hjá fyrirtækinu Dukane Seacom, sagði í viðtali við CNN að þessi tíðni sé frátekin fyrir hljóðbylgjur frá svörtu kössunum til að fá sem bestu skilyrði án þess að bylgjurnar myndu verða fyrir truflandi áhrifum frá öðrum hljóðbylgjum í sjónum. Anish tók einnig fram að það væri undarlegt að aðeins hafi komið eitt merki en ekki taktfast hljóðmerki á sekúndufresti eins og kemur frá neyðarsendunum.

David Johnston, varnarmálaráðherra Ástralíu, sagði að þessum tíðindum ætti að taka með mikillri varúð í kjölfar margra vísbendingar sem hafi gefið falskar vonir sem hefur valdið mikillri tilfinningaflækju fyrir aðstandendur og fjölskyldur þeirra sem voru um borð í vélinni.

"Ég hef ekki náð að komast til botns í þessu en ég get sagt að þetta er ekki í fyrsta sinn sem við höfum haft eitthvað í höndunum sem hefur valdið okkur miklum vonbrigðum", sagði Johnson í viðtali við ABC24







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga