flugfréttir

Möguleiki að vélin hafi farið á hvolf ofan í sjóinn

- "Síðasta rafstuðið í hreyflunum gæti hafa sent aukamerkið til gervitungls"

8. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 01:24

Í dag er einn mánaður síðan að leit hófst að malasísku farþegaþotunni

Svæðið þar sem leitin að malasísku farþegaþotunni hefur minnkað töluvert eftir að ástralska skipið Ocean Shield náði í gær tvisvar sinnum að greina hljóðmerki með Towed Pinger Locator búnaðinum.

Samkvæmt frétt The Sydney Morning Herald kemur fram að svæðið, þar sem möguleg hljóðmerki frá svarta kassa vélarinar hafa greinst, sé í samræmi við síðasta merkið sem malasíska farþegaþotan sendi frá sér til gervitungls.

Auk síðasta sambandsins, er kallast "handshake", þegar flugvélar og gervitungl ná sambandi, kom eitt óskilgreint lokamerki frá vélinni sem talið er hafa komið á þeim tímapunkti sem vélin var búin með eldsneytið, skömmu áður en hún fór í sjóinn og hafi það merki komið mögulega við það að hreyfillinn hafi fengið sitt síðasta afl áður en það slöknaði endanlega á honum.

Chris McLaughlin, hjá breska gervihnattarfyrirtækinu Inmarsat, segir að flugvélin hafi sent, eins og aðrar farþegaþotur, merki til gervitungls á klukkustundafresti þrátt fyrir að búið var að slökkva á öllum sendum vélarinnar.

Þetta allra síðasta "handshake" merki sem um ræðir kom frá flugvélinni klukkan 00:19 að íslenskum tíma, um 8 mínútum eftir hið reglulega merki kom frá vélinni en Inmarsat greindi frá þessu aukamerki fyrst fyrir tveimur vikum síðan.

Stephen Buzdygan, fyrrum flugstjóri hjá British Airways sem flaug Boeing 777 vél, sagði að mögulega hefði vélin svifið og farið á hvolf - "Hreyflarnir fá eldsneytið úr sitthvorum vængnum - ef hinn hætti á undan þá hefði það keyrt vélina á hvolf þar sem eldsneytið í tönkunum var orðið það lítið að það nær ekki inntakinu - Þar sem engin sjálfstýring er til að leiðrétta eldsneytisinntakið þá hefur hún hægt og róleg farið á hvolf og farið í sjóinn með þeim hætti að vængirnir hefðu rifnað strax af", segir Stephen.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga