flugfréttir

Vonast til að vélin finnist á næstu tveimur dögum

- Bluefin-21 lýkur við að kortleggja hafsbotninn í vikunni

20. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 08:56

Bluefin-21 hefur lokið við að skanna 133 ferkílómetra af hafsbotninum á leitarsvæðinu frá upphafi

Sjálfvirka kafbátavélmennið Bluefin-21 er hálfnað við að skanna og kortleggja hafsbotninn á því svæði í Suður-Indlandshafi þar sem talið er sennilegast að malasíska faþegaþotan hafi hrapað í sjóinn.

Bluefin-21 fór fyrir nokkrum klukkutímum í sína áttundu neðansjávarleitarför niður á hafsbotn en núna hefur leitin einblínst við svæði sem hefur 10 kílómetra radíus og er um að ræða þann stað þar sem búnaðurinn Towed Pinger Locator náði að greina mögulegt hljóðmerki frá svörtu kössunum þann 8. apríl.

Hishammuddin Hussein, samgönguráðherra Malaysíu, sagði á blaðamannafundi að mjög mikilvæg tímamót séu framundan í leitinni þar sem vonast er til að Bluefin-21 muni ná að finna flak malasísku vélarinnar á næstu tveimur dögum áður en kafbátavélmennið lýkur við að kortleggja það svæði sem leitaraðgerðin nær yfir.

74% íbúa Malaysíu telja að stjórnvöld hafi eitthvað að fela samkvæmt nýlegri könnun

Nýleg skoðanakönnun sem gerð var í Malaysíu sýnir að aðeins fjórðungur íbúa landsins telja að stjórnvöld séu með hreinan skjöld og er því meirihluti fólks sem telur að ríkisstjórnin hafi eitthvað að fela er kemur að leitinni að malasísku farþegaþotunni sem hvarf fyrir 44 dögum síðan.

Hishammuddin Hussein gerði lítið úr þeirri könnun á blaðamannafundi og sagði að um sé að ræða lítinn hóp fólks sem hefur takmarkaða trú á vinnubrögðum þeirra sem taka þátt í leit að vélinni. - "Sannleikurinn mun alltaf koma í ljós og við höfum ekkert að fela", segir Hussein.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga