flugfréttir

Segir að CIA hafi upplýsingar um afdrif vélarinnar

- "Verið að eyða tíma og peningum í að leita að vélinni"

19. maí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 17:22

Mahathir Mohamad, fyrrverandi forsetisráðherra Malaysíu

Fyrrverandi forsetisráðherra Malaysíu, Mahathir Mohamad, segist sannfærður um að bandaríska leyniþjónustun (CIA) sé að fela upplýsingar varðandi malasísku farþegaþotuna sem hvarf þann 8. mars.

Þetta kemur fram í bloggfærslu sem Mohamad skrifað um helgina og telur hann að Boeing viti einnig meira um málið. Forsetisráðherran fyrrverandi segir það undarleg ef flugvélar hverfi sporlaust með svo einföldum hætti m.a.v. alla þá tækni sem við búum yfir í dag.

"Flugvélin er einhversstaðar og þessvegna ekki lengur í litum Malaysian Airlines", segir Mohamad sem er 88 ára og gengdi embætti forsetisráðherra landsins frá 1981 til 2003.

Segir að CIA hafi yfir að ráða tækni til að taka yfir stjórn á farþegaþotu af öryggisástæðum

Mohamad vitnar í grein sem var skrifuð árið 2006 þar sem sagt er að CIA hafi yfir að ráða tækni til að taka yfir stjórn á farþegþotum með aðstoð frá gervitunglum af öryggisástæðum ef hryðjuverkamenn myndu reyna að ræna flugvél með því að ryðja sér leið inn í flugstjórnarklefann.

"Af einhverjum ástæðum eru fjölmiðlar ekki að skrifa sem viðkemur CIA og Boeing og vona ég því að fólk muni lesa mín skrif".

Boeing hefur sagt að flugvélaframleiðandinn hafi staðið við bakið á leitinni að vélinni frá fyrsta degi og sé gert allt sem hægt er til að komast að því hvað varð um vélina.

Mohamad segir að verið sé að eyða tíma og peningum að leita að vélinni

Forsetisráðherrann fyrrverandi segir einnig að verið sé að eyða tíma og peningum í að leita að flakinu á sjónum þar sem leitin hefur farið fram í Suður-Indlandshafi

"Öll farþegaflug eru raktar með aðstoð frá gervihnöttum með upplýsingum um staðsetningu, áfangastað, flughæð, stefnu og farflugshraða. Þessi vél var smíðuð af Boeing og þeir ættu að tryggja að svona geti ekki gerst og ef það er hægt þá ætti Boeing að vita hvernig þetta gat gerst þar sem staðsetning vélarinnar er stór hluti af örygginu í flugi", segir Mohamad.

Stjórnvöld í Malaysíu, Ástralíu og í Kína ræddu um helgina um framhald leitarinnar sem hófst að nýju eftir stutt hlé í síðustu viku en bilun kom upp á fyrsta degi í lotu tvö í sjálfvirka kafbátavélmenninu Bluefin-21 og hefur verið beðið eftir varahlutum sem komu í dag til Ástralíu frá Bretlandi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga