flugfréttir

Hundur með niðurgang skeit tvisvar á gólfið í miðju flugi

- Einn farþegi ældi vegna lyktarinnar og salernispappírinn kláraðist um borð

31. maí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 13:21

Hundurinn skeit tvisvar á gólf vélarinnar en í seinna skiptið kláraðist salernispappírinn um borð

Undarlegt og sjaldgæft atvik kom upp í háloftunum um borð í Airbus A321 frá US Airways er hundur um borð skeit tvisvar á gólf vélarinnar sl. miðvikudag.

Vélin var á leið frá Los Angeles til Philadelphia en þegar hún var komin klukkustund áleiðis lagði mjög vonda lykt um farþegarýmið sem farþegar sögðu að hafi verið óbærileg.

"Ég fann skyndilega þessa hræðilegu lykt og hélt fyrst að það væri fjölskyldan í sætaröðinni fyrir aftan mig sem lyktaði svona illa", segir Steve McCall sem var farþegi um borð í vélinni en þá kom í ljós að fylgdarhundur eins farþegans hafði gert stykki sín á gólf vélarinnar. - "Þetta voru ekki smágerð stykki - þetta var stór hundaniðurgangur sem myndaði haug", bætir Steve við.

Áhöfnin um borð þreif upp herlegheitin og voru handklæði sett á gólfið svo farþegar gætu átt greiða leið um ganginn.

Hreingerningarlið þrífur vélina við lendingu í Kansas City

Ekki leiðu margar mínútur eftir að mestu þrifin voru yfirstaðin þar til hundurinn tók aðra lotu - "Það var nýbúið að þrífa skítinn þar til hann byrjaði bara aftur", sagði einn farþeginn.

Áhöfnin hóf aftur að þrífa upp eftir hundinn en í þetta skipti kláraðist allur klósettpappírinn. Flugstjórinn kom þá í kallkerfið og sagði: "Það er komið upp smá ástand um borð í vélinni og verðum við vegna þesas að lenda í Kansas City.

Lyktin var það slæm að nokkrir farþegar fundu fyrir ógleði en vitað er um einn sem ældi í kjölfar lyktarinnar.

Vélin lenti skömmu síðar í Kansas City þar sem hreingerningarhópur fór um borð og þreif vélina áður en hún fór aftur í loftið en flug sem átti að taka 7 klukkustundir varð að 14 tíma ferðalagi vegna atviksins.

Margir misstu af tengiflugi og einn farþegi um borð missti af flugi til Grikklands og skemmtiferðasiglingu um Miðjarðarhafið þar sem skipið var farið úr höfn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga