flugfréttir

MH370: Telja að malasíska vélin hafi verið á sjálfstýringu er hún fórst

- Yfirvöld í Ástralíu kynna formlega nýja leitarsvæðið

26. júní 2014

|

Frétt skrifuð kl. 10:26

Warren Truss, varaforsetisráðherra Ástralíu, kynnir nýja leitarsvæðið á blaðamannafundi í nótt

Yfirvöld í Ástralíu hafa formlega kynnt nýtt leitarsvæði sem búið er að skipuleggja fyrir næstu lotu í leitinni að malasísku farþegaþotunni sem hvarf á leið frá Kuala Lumpur til Peking þann 8. mars í vor.

Áströlsk stjórnvöld birtu í dag 64 blaðsíðna skýrslu þar sem fram kemur m.a. að mælt er með því að leitin skulu fara fram á svæði í Suður-Indlandshafi sem er 60 þúsund ferkílómetrar að stærð en svæðið er í um 1.800 kílómetra fjarlægð vestur af Ástralíu og liggur með fram hinum sjöunda hringboga svokallaða og er mun sunnar en þar sem leitað var fyrst.

Appelsínugula á kortinu sýnir hvar nýja leitarsvæðið er

Þá segir einnig í skýrslunni að allt bendi til þess að malasíska farþegaþotan hafi verið á sjálfstýringu er hún fórst í hafið þar sem ekki er talið að hún hefði geta flogið svona beint alla þessa leið ef miðað er við þá útreikninga sem gerðir voru á því hvar vélin var í hvert skipti er hún sendi frá sér merki til gervitunglsins Inmarsat-3.

"Það er mjög mjög sennilegt að vélin hafi verið á autopilot því annars hefði hún ekki geta flogið þessa leið sem hefur verið reiknuð út út frá gögnum frá gervitunglinu", segir Warren Truss, varaforsetisráðherra Ástralíu.

Leitin að vélinni mun því færast sunnar en leitað hafði verið áður en búið var að tilkynna fyrir um viku síðan áætlanir um að færa leitarsvæðið sunnar en beðið hefur verið eftir að sérfræðingar myndu ljúka við að gera nákvæma útreikninga fyrir skýrsluna á nýja leitarsvæðinu sem birt var í dag.

Telja að síðasta merkið hafi komið rétt áður en vélin fór að lækka til brotlendingar á hafi

Nýja leitarsvæðið mun einblína á sjöunda hringbogann í samræmi við þá flugstefnu sem talið er að vélin hafi flogið þegar hún gaf frá sér síðasta merkið til gervitungls.

Útreikningar sérfræðinga gera ráð fyrir að vélin hafi flogið eftir sjöunda hringbogann og þverað hann þegar vélin gaf frá sér seinustu merkin til gervitunglsins er kallast "handshake" þar sem vélin lét vita af sér á klukkutíma fresti að hún væri á flugi.

Síðasta merkið sem vélin gaf frá sér var hinsvegar aukamerki sem var ekki eitt af þeim reglulegum merkjum sem vélin gaf frá sér og er talið að vélin hafi þá verið búin með allt eldsneytið um borð. Þar af leiðandi hafi aukaaflstöð farið í gang í kjölfar þess hafi vélin reynt inn skrá sig aftur inn á gervitunglið.

Undir venjulegum kringumstæðum hefði átt að eiga sér stað frekari gagnasamskipti milli vélarinnar og gervitungslins en þar sem svo var ekki telja sérfræðingar að ballið hafi verið búið og vélin á leiðinni niður.

Hópur sérfræðinga hafa komist af þessari niðurstöðu og kemur fram að þetta sé ekki niðurstaða eins fyrirtækis eða Inmarsat eingöngu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga