flugfréttir

MH370: Var flugvélin forrituð í FMS til að fljúga til Ástralíu?

- Rannsaka þær flugleiðir og "waypoints" sem vélin gæti hafa flogið eftir

27. júní 2014

|

Frétt skrifuð kl. 23:19

Verið er að skoða hvort að flugleið vélarinnar suður í Indlandshafi hafi verið forrituð inn í Flight Management System (FMS)

Rannsóknaraðilar í Ástralíu skoða þann möguleika hvort að flugmenn vélarinnar, eða einhver í stjórnklefanum, hafi sett inn í flugstýrikerfi vélarinnar (Flight Management System) áætlaða flugleið til Ástralíu og er verið að kanna fjórar leiðir sem gætu komið til greina.

Þá eru Cocos-eyjar, sem eru staðsettar í um 2.750 kílómetra fjarlægð norðvestur af Perth í Ástralíu, einn möguleikinn sem talinn er upp í skýrslunni sem rannsóknarnefnd flugslysa í Ástralíu birti í gær.

Í skýrslunni segir orðrétt að farþegaþota á borð við vél Malaysia Airlines, Boeing 777, hafi flugstýrikerfi er kallast Flight Management System sem tengist siglingatækjum vélarinnar og staðsetningargagnagrunni sem heldur utan um flugleiðir og staðsetningarpunkta (wayoints) sem annaðhvort eru kallaðir fram úr gagnagrunni eða að flugmenn búi til nýja punkta út frá fyrirfram ákveðni staðsetningu sem þeir setja inn í tölvuna.

Er malasíska farþegaþotan hvarf af ratsjánni þann 8. mars sl. var hún að nálgast waypoints IGARI en því næst var vélinni flogið af leið til vesturs yfir Malaysíu-skagann.

Frumratsjá malasíska flughersins greindi vélina á flugi norðvestur eftir Malacca-sundi þar sem vélinni var flogið gegnum staðsetningarpunktanna VAMPI, MEKAR og NILAM og mögulega eftir flugleiðinni N571 sem er einnig er að finna í gagnagrunni í flugstýrikerfa en eftir það hvarf vélin af ratsjá hersins.

Rannsóknarnefndin segir að þar sem talið er að vélin hafi beygt til suðurs niður eftir Indlandshafi að þá sé verið að athuga hvort að vélin hafi verið forrituð eftir alþjóðaflugleiðum suður á bóginn og eru um fjórar leiðir sem koma til greina.

Fyrsta flugleiðin sem talin er upp er N509 sem myndi leiða vélina til bæjarins Port Hedland í Vestur-Ástralíu og önnur flugleiðin er N640 sem hefði tekið vélina til Adelaide gegnum staðsetningarpunktana BIKOK, COLOMBO, LEARMONTH og MOUNT HOPE.

Þriðja flugleiðin er L894 sem liggur til Perth gegnum waypoints KITAL, MALE, SUNAN og DADAR en einnig kemur til greina að vélin hefði tekið M641 leiðina sem liggur til Cocos-eyja sem er staðsett í Indlandshafi suður af Súmötru.

Einnig var skoðuð flugleiðin RUNUT sem er alþjóðaflugleið sem Emirates notar t.a.m. á flugi sínu milli Perth og Dubai en það er þó talið hæpið þar sem hún kemur ekki heim og saman við sjöunda hringbogann og þá staði þar sem talið er að malasíska vélin hafi verið er hún sendi frá sér hin svokölluðu "handshake" merki til gervitunglins Inmarsat-3.

"Allar flugleiðir fara í gegnum staðsetningarpunkta sem við höfum nú verið að skoða og vita hvort flugleið vélarinnar suður á bóginn hafi mögulega farið eftir ákveðni flugleið sem gæti hafa verið sitt inn í flugtölvu vélarinnar", segir í skýrslunni.

Flugvellirnir í Port Hedland, Adelaide og í Perth geta allir tekið á móti Boeing 777 en stysta flugbrautin er á Cocos-eyjum. "Boeing 777 gæti "auðveldlega" lent þar", segir einn flugsérfræðingur í frétt news.com.au







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga