flugfréttir

Dularfull rafmagnstruflun áður en vélin hvarf gæti verið merki um flugrán

- Telja að þar hafi einhver verið að undirbúa að láta vélina hverfa af radar

1. júlí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 14:10

Dularfull rafmagnsbilun gæti verið vísbending um að malasísku vélinni var rænt

Rannsóknaraðilar í Ástralíu hafa komist að því að rafmagnstruflun hafi komið upp um borð í malasísku farþegaþotunni rétt áður en hún hvarf af radar þar sem að fjarskiptabúnaður vélarinnar reyndi að tengjast aftur gervitungli eftir að tengingin slitnaði.

Flugsérfræðingar, sem hafa tjáð sig um málið, telja að þarna hafi greinilega einhver verið að undirbúa að aftengja vélina til að láta hana hverfa af ratsjá sem bendi til að vélinni hafi verið rænt.

Í hinni 64 blaðsíðna skýrslu sem rannsóknarnefnd flugslysa í Ástralíu birti í síðustu viku segir að sjaldgæft sé að fjarskiptakerfi aftengist og reyni að skrá sig aftur inn á gervitungl í miðju flugi.

"Það getur verið að einhver í stjórnklefanum hafi verið að eiga við fjarskiptabúnaðinn til að láta vélina hverfa af ratsjá og það hafi orsakað þá truflun sem kom fram í rafkerfi vélarinnar. Mögulega hafi verið slökkt á rafkerfinu í smástund og svo rafmagnið sett á aftur", segir David Gleave, flugöryggissérfræðingur hjá Loughborough-háskóla.

Breska gervihnattarfyrirtækið Inmarsat hefur staðfest að rafmagnið fór af vélinni í smástund en fyritækið hefur ekki tjáð sig um hver ástæðan fyrir því gæti verið.

"Það er greinilegt að það kom upp truflun í rafkerfi vélarinnar. Það er enn önnur ráðgátan. Við getum ekki útskýrt hversvegna, við vitum ekki af hverju en við vitum bara að þetta átti sér stað", segir Chris McLaughlin hjá Inmarsat.

Aðspurður hvort að rafmagnstruflunin gæti hafa orsakast vegna bilunar þá svarar David Gleave: "Það eru nokkrar tegundir af bilunum sem gætu hafa orsakað það en þú myndir þá ekki fljúga fleiri hundruð kílómetra suður í Indlandshafið eftir það".

Annar flugsérfræðingur, Peter Marosszeky hjá háskólanum í New South Wales í Ástralíu, tekur í sama streng og segir að rafmagnstruflunin hafi sennilega orsakast vegna mannlegra gjörða.

"Sá sem gerði þetta hlýtur að hafa vitað hvað hann var að gera og bendir þetta til að þarna hafi verið flugrán í uppsiglingu eða einhver ætlaði að taka yfir vélina", segir Marosszeky.

Malasísk stjórnvöld segja ekkert dularfullt við truflun á gervihnattarsambandi

Samgönguráðherra Malaysíu, Hishammuddin Hussein, sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir að ekkert dularfullt sé við það ef truflun kemur upp í fjarskiptum vélarinnar við gervitungl og segir hann að aðeins sé um getgátur um að ræða sem eigi sér engar stoðir.

Hussein segir samt að flugvélin hafi reynt að ná aftur sambandi við gervitungl um eina og hálfa klukkustund eftir flugtak frá Kuala Lumpur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga