flugfréttir

Hvar var malasíska vélin í 52 mínútur norður af Súmötru?

17. júlí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 05:15

Sjálfstæður rannsóknarhópur spyr sig hvers vegna það tók malasísku vélina 1:13 klukkustund að fljúga 313 kílómetra vegalengd

Sjálfstæður og óháður rannsóknarhópur, sem samanstendur af vísindamönnum og aðilum með sérfræðilegan bakgrunn, sem hefur rannsakað hvarf malasísku farþegaþoturnnar, hefur birt skýrslu sem rennir stoðum undir þær tilgátur að rafmagnstruflun hafi komið upp um borð í vélinni, skömmu áður en hún hvarf, sem var m.a. tengd við flugrán fyrr í mánuðinum.

Alltumflug.is birti þann 1. júlí frétt þar sem greint var frá því að rannsóknaraðilar í Ástralíu töldu að dularfull bilun hefði komið upp í rafkerfi vélarinnar sem er talin hafa orsakað að fjarskiptabúnaður vélarinnar aftengdist gervitunglinu Inmarsat-3 en kerfið reyndi að tengjast gervihnettinum á ný aftur en sérfræðingar segja að það sé afar sjaldgæft að samband slitnar milli farþegaþotu og gervitungls.

Flugsérfræðingar töldu að þar hafi greinilega einhver verið að undirbúa að aftengja vélina til að láta hana hverfa af ratsjá sem bendi til að vélinni hafi sennilega verið rænt.

Sjálfstæði rannsóknarhópurinn segir að það vanti 52 mínútur upp
á staðsetningu vélarinnar á einum stað

Þann 15. júlí sl. birtist frétt á ástralska vefnum Crikey.com.au frétt þar sem kemur fram að óháður rannsóknarhópur, sem hefur rýnt í gögn sem voru birt opinberlega í vor, hefur komist að því að á einum tímapunkti sé mjög óljóst um staðsetningu vélarinnar á því ferli sem vélin átti að hafa flogið og séu 52 mínútur sem vanti upp á sem bendir til þess að vélin hafi sennilega flogið í hringi eða farið krókaleið á einum tímapunkti.

Samkvæmt stjórnvöldum í Ástralíu átti vélin að hafa sent frá sér ótímabært merki til gervitungls eftir að vélin hvarf af frumratsjá malasíska hersins er hún var komin inn á Malacca-sundið, norður af nyrsta odda Súmötru.

73 mínútum síðar kemur næsta eðlilega "handshake" merki frá vélinni til gervitungls sem vélin sendi frá sér á klukkutímafresti og var vélin þá búin að fljúga 313 kílómetra á einni klukkustund og 13 mínútum.

Þar sem vélin átti að hafa verið á 885 kílómetra hraða þá hefði hún átt að fljúga þessa leið á 21 mínútu og segir sjálfstæði rannsóknarhópurinn að 52 mínútur vanti upp á sem þýðir að vélin hafi sennileg farið krókaleið áður en henni var flogið beint til suðurs niður eftir Suður-Indlandshafi.

Sú mögulega krókaleið gæti hafa orsakast út af þeirri rafmagnsbilun sem talin er að hafi komið upp sem gæti hafa orsakast ef einhver um borð var að taka fjarskiptabúnað vélarinnar úr sambandi til að fljúga vélinni óséðri á ratsjá.

"Það getur verið að einhver í stjórnklefanum hafi verið að eiga við fjarskiptabúnaðinn til að láta vélina hverfa af ratsjá og það hafi orsakað þá truflun sem kom fram í rafkerfi vélarinnar. Mögulega hafi verið slökkt á rafkerfinu í smástund og svo rafmagnið sett á aftur", sagði David Gleave, flugöryggissérfræðingur hjá Loughborough-háskóla fyrir um mánuði síðan varðandi rafmagnstruflunina.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga