flugfréttir
MH370 gæti hafa flogið 1.000 mismunandi leiðir suður í Indlandshaf
- Leitin að malasísku farþegaþotunni hefst á ný þann 22. september

Sérfræðingar eiga enn eftir að kanna allar þær mögulegu leiðir sem vélin hefði geta flogið
Malasíska farþegaþotan gæti hafa flogið 1.000 mismunandi flugleiðir á för sinni suður í Indlandshaf og eiga sérfræðingar enn eftir að rannsaka hverja einustu stefnu sem vélin hefði geta tekið.
Lota tvö í leitinni að flugi MH370 hefst þann 22. september og segir Martin Dolan, yfirmaður samgönguöryggisnefndar Ástralíu, að
að ekki sé hægt að lofa því hvort að flakið komi í leitirnar þegar leitin hefst að nýju eftir 13 daga.
"Það eina sem er víst er að vélin flaug niður í átt að mjög afskektu og víðáttumiklu hafsvæði sem
er 1,6 milljón ferkílómetrar að stærð sem er meira en þrisvar sinnum stærra en Spánn", segir Dolan.
"Ég vill ekki gefa ættingjum og aðstandendnum falskar vonir og láta þá verða fyrir vonbrigðum aftur - En ég vill
alls ekki afskrifa þann möguleika heldur því að við trúum því að við eigum möguleika - En það er engin trygging
fyrir því samt", sagði Dolan
í viðtali við The Telegraph.
Allt spurning um peninga hversu lengi leitað verður að vélinni
"Við vitum að vélin er þarna í sjónum eða á hafsbotni nálægt sjöunda hringboganum og við erum að gera
allt sem í okkar valdi stendur - sem er mjög mikið - til að finna vélina á þessu svæði"

Ekki er vitað nákvæmlega hvaða stefnu malasíska vélin tók
suður á bóginn eftir Indlandshafinu
"Það eru fjöll þarna á botninum, útbrunnin eldfjöll, klettar, björg og margt annað sem getur hægt á leitinni. Tæknilega
séð getur leitin staðið yfir endalaust þar til búið er að útiloka allt hafsvæðið og það mun koma að þeim tímapunkti
að ríkisstjórnir munu segja: "ok, þetta er komið gott. Það er best að hætta leitinni", segir Dolan, sem segir að það
sé ekki hann sem ráði neinu um það, heldur er það allt spurning um peninga.
"Það eru enn margar leiðir sem vélin hefði geta flogið - en við munum byrja leitina á því að kanna svæðin sem koma
sterklegast til greina".
Leitin mun hefjast á því að skipið Go Phoenix mun nota næstukynslóðar sónarbúnað sem getur framkallað
háskerpumyndir af hafsbotninum á leitarsvæðinu.
Þann 13. október mun skipið Fugro Discovery slást í hópinn og í byrjun nóvember mun systurskipið, Fugro Equator, mæta
á svæðið en bæði Fugro-skipin munu nota neðansjávarleitarbúnað er kallast "towfish" sem verður dregin í um 100 metra hæð yfir sjávarbotninum sem á þessu svæði nær niður á allt að 6 kílómetra dýpi en toglínan, sem dregur búnaðinn, er um 10 kílómetra löng.
Ekki allir sem hafa trú á leitinni
Á sama tíma hefur Sarah Bajc, unnusta Peter Woods, sem var farþegi um borð í malasísku vélinni, sagt í viðtali
við Mail Online að hún trúi því að leitin sé sviðsetning þar sem verið er að fela sannleikann.

Sarah Bajc, unnusta Peter Woods, hefur enga trú á leiðinni og er
sannfærð um að verið sé að halda einhverju leyndu varðandi
hvarfið
"Ég held að ef sömu aðilarnir ætla sér að halda áfram að leita að vélinni að þá mun hún aldrei finnast. Ég tel að það sé vísvitandi verið að hagræða sannleikanum og búið sé að taka skref til að koma í veg fyrir að vélin muni finnast", segir Sarah sem segist ekki vita hversu mikið er verið að sópa undir teppið en telur að það sé verið að halda einhverju leyndu.


7. febrúar 2019
|
Ástralska flugfélagið Qantas hefur formlega hætt við pöntun í þær átta Airbus A380 risaþotur sem félagið átti eftir að taka við.

7. febrúar 2019
|
Ástralska flugfélagið Qantas hefur formlega hætt við pöntun í þær átta Airbus A380 risaþotur sem félagið átti eftir að taka við.

13. janúar 2019
|
Aftur hefur komið upp villa í bókunarkerfi hjá flugfélaginu Cathay Pacific sem gaf farþegum kost á því að bóka flug á fyrsta farrými á brunaútsöluverði en aðeins eru tvær vikur frá því að nokkrum fa

16. febrúar 2019
|
Breska flugfélagið flybmi hefur hætt öllu flugi og óskaði í dag eftir því að verða tekið til gjaldþrotaskipta.

16. febrúar 2019
|
Flugmálayfirvöld í Evrópu (EASA) hafa sent frá sér tilmæli og viðvörun vegna hættu á að dyr á flugvélum með þrýstingsjöfnun í farþegarými geti sprungið úr falsinu vegna þrýstingsmunar við vissar aðst

16. febrúar 2019
|
Farþegaþota af gerðinni Boeing 737-800 frá indónesíska flugfélaginu Lion Air fór út af flugbraut í lendingu á Supadio-flugvellinum í borginni Pontianak á eyjunni Borneó í morgun.

14. febrúar 2019
|
Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) hafa hvatt bandarísk stjórnvöld, og alla þá sem koma að máli, að sjá til þess að lokun stofana í Bandaríkjunum muni ekki hafa áhrif á flugsamgöngur eins og gerðist

13. febrúar 2019
|
Norwegian hefur ákveðið að hætta að fljúga til Karíbahafsins en félagið byrjaði að fljúga til Karíbahafsins árið 2015.

12. febrúar 2019
|
Lufthansa hefur tekið á leigu tvær Airbus A220 (Bombardier CSeries) þotur frá flugfélaginu airBaltic.

12. febrúar 2019
|
Loka þurfti fyrir flugumferð á flugvellinum í bænum Florence í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum sl. sunnudag eftir að tilkynnt var um konu sem hljóp nakin um flugvallarsvæðið.

12. febrúar 2019
|
Að minnsta kosti fimm slösuðust er stigabíll féll saman þegar farþegar voru að ganga um borð í Airbus-þotu hjá flugfélaginu Ural Airlines á flugvelli í Síberíu í dag.