flugfréttir

„Það er verið að leyna upplýsingum um hverjir voru um borð í flugi MH370“

- Forstjóri Emirates segir að það séu einhverjir sem vita eitthvað um vélina

21. nóvember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 23:56

Tim Clark, forstjóri Emirates

Tim Clark, forstjóri Emirates, sem er eitt stærsta flugfélag í heimi, hefur aftur verið í fréttum sl. daga vegna hvarfs malasísku farþegaþotunnar, flug MH370.

Clark segir að verið sé að fela sannleikann og m.a. er verið að leyna upplýsingum um hverjir voru í raun um borð í vélinni og efast hann um hlutverk malasíska flughersins sem hefur verið fordæmdur fyrir að hafa ekki brugðist við er í ljós kom að ókunn flugvél kom fram á frumratsjá hersins nóttina sem vélin hvarf.

Tim Clark segir að það sé engin glóra í því að halda því fram að flugmenn vélarinnar hafi brotlent vélinni vísvitandi þar sem þeir hefðu beint vélinni beint ofan í sjóinn í stað þess að fljúga henni í margar klukkustundir og taka allan fjarskiptabúnað úr sambandi.

"Til að gera það þarftu að yfirgefa flugstjórnarklefann og fara niður gegnum hlera ofan í rýmið þar sem rafkerfi vélarinnar er staðsett", segir Clark sem telur að þeir sem rannsaka hvarfið sitji á upplýsingum sem þeir vilja ekki gefa upp.

"Við verðum að komast að því hver var um borð í vélinni og það er að sjálfsögðu einhverjir sem vita það nákvæmlega".

"Það er mikil flugumferð á þessu svæði og á að vera tvímælalaust hægt að greina hvort að viðkomandi flugvél á ratsjá sé "góðkynja" eða "óvinavél" - en að gera ekkert í málinu er mjög undarlegt", segir Clark.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga