flugfréttir

Telur að flug MH370 hafi farist nálægt Diego Garcia

- Marc Dugain segir að vélinni hafi sennilega verið rænt eða skotin niður

20. desember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 07:23

Marc Dugain telur að stjórnvöld viti allt um hvarf malasísku farþegaþotunnar

Þekktur rithöfundur í Frakklandi, sem einnig var forstjóri yfir frönsku flugfélagi á árum áður, telur að malasíska farþegaþotan, flug MH370, hafi verið rænt og hún skotin niður af bandaríska flughernum eða vélin hafi farist á leið sinni til eyjunnar Diego Garcia.

Marc Dugain gaf út sex blaðsíðna grein varðandi hið dularfulla hvarf sem var birt í frönskum fjölmiðlum en hann flaug sjálfur til Maldívíeyja til að ræða víð eyjaskeggja sem greindu frá því, tveimur vikum eftir að vélin hvarf þann 8. mars í vor, að þeir höfðu sé risastóru þotu fljúga í lágflugi yfir eyjarnar í svipuðum litum og vél Malaysian Airlines í átt að Diego Garcia eyjunni sem liggur 500 kílómetrum sunnar þar sem bandaríski herinn hefur herstöð sem mikil leynd hvílir yfir.

Dugain telur að mögulega hafi vélinni verið rænt þar sem brotist hafi verið inn í tölvukerfi vélarinnar og viðkomandi aðilar hafi með þeim hætti tekið yfir stjórn hennar og fjarstýrt vélinni og nefnir hann búnað sem er til staðar fyrir neyðaratvik sem Boeing á að hafa komið fyrir í nýjum farþegaþotum í samvinnu við Bandaríkjaher svo hægt sé að taka yfir sjálfstýringuna.

Möguleg flugleið ef flug MH370 hefði flogið til Diego Garcia með yfirflugi yfir
Maldívíeyjar

Líkur á að bandaríski herinn hafi skotið vélina niður

Dugain segir að hinsvegar sé það mögulegt að eldur hafi komið upp um borð í vélinni og hafi flugmenn vélarinnar því aftengt öll rafkerfi um borð sem útskýrir hversvegna öll fjarskiptakerfi duttu út og vélin hvarf af ratsjá.

"Sama hver ástæðan var fyrir því að vélin fór af áætlaðri flugleið þá tel ég að hún hafi verið á leið til Diego Garcia og þar á meðal sé möguleiki að bandaríski herinn hafi skotið vélina niður af ótta við að hún myndi verða notuð í hryðjuverkaárás svipaðri og þeirri sem átti sér stað í Bandaríkjunum þann 11. september árið 2001", segir Dugain.

Eldvarnarhylki úr Boeing-vél fundust á ströndinni

Dugain hitti bæjarstjórann í þorpi á eyjunni Baarah á Maldívíeyjum sem sýndi honum myndir af torkennilegum hlutum sem skoluðu upp á land nokkrum dögum eftir að vélin hvarf en herinn gerði umrædda hluti upptæka.

Til vinstri: Eitt afþeim hylkjum sem fundustu á ströndinni á Maldívíeyjum í mars / Til hægri: Sambærilegt hylki um borð í Boeing 777

Tveir flugsérfræðingar og yfirmaður hersins á eyjunum staðfestu að þarna hefði verið á ferðinni tóm hylki sem tilheyra eldvarnarkerfi um borð í Boeing 777 vél en ef hylkinn hefðu verið heil þá hefði þau ekki flotið á yfirborðinu og sokkið þess í stað.

Telur allt benda til þess að verið sé að fela sannleikann

Dugain dregur fram í grein sinni ályktanir frá þeim upplýsingum sem ekki hafa komið fram í stað þeirra sem nú þegar liggja fyrir hendi sem eru af skornum skammti.

Dugain segir að í augnablikinu séu leitaraðgerðirnar einungis byggðar á upplýsingum frá gervitungli frá fyrirtækinu Inmarsat en Dugain minnir á að slík fyrirtæki, sem hafa yfir að ráða gervitunglum, vinni náið með leyniþjónustum svo ekki sé erfitt að fara fram á að sannleikanum sé sópað undir teppi.

Dugain segir að áhugaleysi stjórnvalda við ábendinum frá íbúum Maldívíeyja, sem töldu sig hafa séð vélina, auk leyndardómsins varðandi þess varnings sem var í fraktinni, endurspegli að verið sé að fela sannleikann um hvarf flugs MH370.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga