flugfréttir
Sprautaði óvart froðu þegar mynda átti vatnsboga - Jómfrúarfluginu aflýst
"Fegurðardrottningin" froðufellandi
Undarlegasta seinkun á flugi kom upp á hjá Virgin Atlantic þegar mistök urðu þegar slökkvibíll átti að sprauta vatnsboga yfir Airbus A330 vél félagsins sem var á leið í jómfrúarflug.
Þetta var fyrsta flug Virgin Atlantic til Atlanta í Bandaríkjunum og var vélin, sem nefnist Beauty Queen, á leið út á braut þegar einn slökkvibíllinn óvart sprautaði froðu yfir vélina í stað vatns.
Mistökin urðu til þess að hætta þurfti við allt og þurfti að koma farþegum fyrir á hótel yfir nóttina þar sem skoða þurfti vélina og ganga úr skugga um að froðan hefði ekki valdið skemmdum á hreyfli.
Talsmaður Virgin Atlantic segir að um vandræðaleg mistök hafi verið að ræða en farþegar voru að vonum mjög pirraðir þar sem þeir voru spenntir að komast í loftið og sáu ekki fyrir sér að þurfa að fara á hótel og bíða fram á næsta dag.
"Alveg frábært að það kemur seinkun vegna þess að hátíðlega athöfn Virgin Atlantic fór úr böndunum", segir einn farþeginn á Twitter-síðu sinni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.