flugfréttir
Icelandair mun hefja flug til Aberdeen í Skotlandi
- Flugfélag Íslands mun annast flugið fyrir Icelandair á Bombardier Q400 flugvél
Flugið til Aberdeen mun hefjast í mars 2016
Icelandair hefur ákveðið að hefja áætlunarflug til Aberdeen í Skotlandi í mars á næsta ári en flogið verður fjórum sinnum í viku, á mánudögum, miðvikudögum, föstudögum og laugardögum.
Aberdeen er á norðausturströnd Skotlands, þriðja stærsta borg landsins á eftir Glasgow og Edinborg, með um 300 þúsund íbúa. Hún er helsta miðstöð olíu- og gasiðnaðarins við Norðursjó, og forn mennta- og menningarborg. Fjölmargir frábærir golfvellir eru í og við borgina. Hún er sjötti áfangastaðurinn í Bretlandi sem Icelandair þjónustar.
Flugfélag Íslands mun annast flugið fyrir Icelandair á Bombardier Q400 flugvél sem tekur 72 farþega. Flogið verður til og frá Keflavíkurflugvelli og með sömu tengimöguleikum fyrir farþega yfir Norður-Atlantshafið og í öðru flugi í leiðakerfi Icelandair á morgnana og síðdegis. Flugið til Aberdeen tekur 2:50 klukkustundir.
„Þetta flug er liður í því að þétta og styrkja leiðakerfi Icelandair. Við sjáum ákveðin tækifæri í því að nýta smærri flugvél eins og Q400 til að fara inn á Aberdeen markaðinn, tengja hann í leiðakerfið og byggja hann upp til framtíðar“, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.
Undirbúningur fyrir sölu- og markaðsstarf hefur verið unnin í samstarfi við alþjóðaflugvöllinn í Aberdeen og ferðamálaráð. "Það eru frábærar fréttir fyrir ferðaþjónustuna í Skotlandi að Icelandair hefur bætt þessari flugleið í leiðakerfi sitt“, segir Mike Cantlay, stjórnarformaður Visit Scotland. „Stefna okkar er að auka beinar flugsamgöngur með því að vinna með alþjóðaflugfélögum og við vonumst til þess að þetta flug fjölgi gestum, ekki bara frá Íslandi, heldur frá helstu mörkuðum okkar í Norður-Ameríku“.
Aberdeen er 26 áfangastaður Icelandair í Evrópu, en auk þess flýgur félagið til 15 áfangastaða í Norður-Ameríku.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.