flugfréttir
Mörgæsir lykillinn að afísingu flugvéla í framtíðinni
- Fjaðrir mörgæsa frjósa aldrei þrátt fyrir sundsprett í 40 gráðu frosti
Mörgæsir geta synd í sjó sem er - 40 gráður án þess að feldur þeirra frjósi
Mögulega gætu mörgæsir komið í veg fyrir flugslys í framtíðinni en vísindamenn hafa komist að því að fjaðrir mörgæsa búa yfir náttúrulegri afísingu sem gæti haldið vængjum flugvéla auðum.
Mörgæsir á Suðurskautslandinu geta synt í sjó sem er -40°C gráðu kaldur en þrátt fyrir það
frjósa fjaðrir mörgæsa aldrei þar sem olíu í feldi þeirra kemur í veg fyrir það.
Vísindamenn frá Háskólanum í Kaliforníu hafa varið löngum tíma í að rannsaka fjaðrir mörgæsa í von um að komast að
„afísingar-leyndarmáli“ þeirra en þeir fundu út að samsetning fjarðanna og sérstök
olía í líkama þeirra, sem þær gera á sig, gera feldinn mjög vatnshryndandi.
Vatnsdropar sem myndast ná ekki festu á feldi mörgæsanna þar sem þeir halda hitanum inni í dropanum
sem verður til þess að þeir detta af fjöðrunum án þess að hafa tíma til að frjósa.
Pirouz Kavehpour, prófessor í flugvélaverkfræði, gaf því gaum fyrir mörgum árum er hann horfði á
heimildarmyndir um mörgæsir að feldur þeirra var yfirleitt ekki frosinn.
Kavehpour hafði samband við Judy St. Leger sem er sérfræðingur í mörgæsum en hún staðfesti að
feldur mörgæsa frjósi yfirleitt aldrei ef þær eru heilbrigðar.
Ísing á vængjum og flöpsum á flugvélum getur breytt fluglagi vélarinnar og reynst mjög hættulegt
fyrirbæri sem hefur leytt til flugslysa.
Flugfélögin eyða tíma og peningum í að afísa flugvélar sínar en efni sem væri sambærilegt í uppbyggingu
og fjaðrir mörgæsa, gæti sparað tíma, fyrirhöfn og peninga við afísingu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.