flugfréttir
AirBaltic mun hefja flug til Íslands
- Fljúga frá Riga með Boeing 737-300
Flugtíminn frá Riga til Keflavíkur verður um fjórar klukkustundir
Nýtt flugfélag hefur bæst á listann yfir þau flugfélög sem hafa boðað komu sína til Íslands næsta sumar en nokkur flugfélög hafa frá því í haust tilkynnt um komu sína til Keflavíkurflugvallar.
Það er lettneska flugfélagið airBaltic sem ætlar að hefja flug hingað frá og með 28. maí og verður flogið beint
frá Riga til KEF.
„Með þessari nýju flugleið mun bjóðast einstakt tækifæri á að skoða Reykjavík sem er ein magnaðasta borgin á Norðurlöndum þar
sem er að finna hrífandi landslag og fallega náttúru. Á sama tíma munu ferðamenn frá Íslandi fá tækifæri til að fljúga til baltnesku landanna“, segir Wolfgang Reuss hjá air Baltic.
Flogið verður með vélum af gerðinni Boeing 737-300 tvisvar í viku en áætlaður flugtími
er um 4 klukkustundir og fimm mínútur og munu fargjöld kosta frá 19.600 krónum aðra leiðina með sköttum.
AirBaltic býður upp á áframhaldandi flug til 60 áfangastaða til Evrópu, Miðausturland, Rússlands og til landa fyrrum Sovíetríkjanna en félagið flýgur m.a. til Abu Dhabi, Minsk, Moskvu, Tashkent, Tbilisi auk fjölda annarra borga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.