flugfréttir

Tveir flugmenn segja augljóst að Zahaire flugstjóri lét MH370 hverfa viljandi

- Segja færri vísbendingar sem benda til súrefnisskorts og meðvitundarleysi

15. janúar 2016

|

Frétt skrifuð kl. 15:46

Zaharie Ahmad Shah flugstjóri

John Cox, sérfræðingur í flugöryggismálum og fyrrverandi flugstjóri hjá bandarísku flugfélagi, telur allt benda til þess að Zaharie Ahmad Shah, flugstjóri malasísku farþegaþotunnar sem leitað hefur verið að frá því í mars árið 2014, hafi rænt vélinni og grandað henni í votri gröf og segir fleiri vísbendingar sanna það heldur en kenningu stjórnvalda sem er sú að flugmennirnir hafi misst meðvitund.

22 mánuðir eru liðnir frá því að flug MH370 hvarf á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking en ekkert hefur spurst til vélarinnar þrátt fyrir stærstu og dýrustu leit sem gerð hefur verið að flugvél í sögu mankyns.

Samgönguöryggisnefnd Ástralíu (ATSB), sem hefur yfirumsókn með leitinni að MH370, ásamt stjórnvöldum annarra landa á borð við Malasíu, telja enn þann dag í dag að sennilegasta orsök hvarfsins sé sú að flugmenn vélarinnar hafi misst meðvitund vegna súrefnisskorts með þeim afleiðingum að malasíska farþegaþotan hafi flogið stjórnlaus suður í Indlandshaf þar til eldsneytið var á þrotum.

John Cox, sem í dag rekur ráðgjafarfyrirtæki á sviði öryggismála í fluginu, varar við því að gefast upp á leitinni að vélinni en áætlað er að leit verði hætt í júní í sumar en yfirlýsing Cox kom í kjölfar viðtals við flugstjórann Byron Bailey sem birtist í The Weekend Australian.

John Cox, fyrrverandi flugstjóri og fyrrverandi rannsóknaraðili hjá
NTSB (til vinstri) og Byron Bailey, flugstjóri (til hægri)

Bailey segir í viðtali við ástralska fjölmiðilinn að þau boð sem gervitunglið Inmarsat fékk frá vélinni á klukkutíma fresti á leið sinni suður í Indlandshaf bendi til þess að það var einhver við stjórnvölinn lengi vel eftir að samband við vélina rofnaði þar sem sjálfstýringin hefði annars alltaf stillt sig aftur á flugleiðina til Peking ef flugmennirnir hefðu misst meðvitund.

ATSB telur að vélin hafi flogið stjórnlaus suður í Indlandshaf en margir atvinnuflugmenn hafa bent á að Zaharie flugstjóri hefði alveg getað forritað flugleiðina inn í flugtölvuna (flight management system) á meðan að hann var við stjórnvölin.

„Það eru alls ekki nægilega margar sannanir fyrir hendi sem styðja kenninguna með að þeir hafi orðið fyrir súrefnisskorti og misst meðvitund“, segir Cox.

Cox segir að í rauninni eru fleiri sannanir sem benda til þess að ásetningur flugstjórans hafi verið vísvitandi.

„Mín kenning er sú að flugstjórinn sjálfur hafi látið flug MH370 hverfa vísvitandi“, bætir Cox við sem hefur starfað hjá Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) og komið að sex rannsóknum á flugslysum.

Fjölskylda Zaharie hefur þvertekið fyrir það að flugstjórinn hafi átt þátt í hvarfi vélarinnar og því síður að hann hefði gert slíkt viljandi og rænt sinni eigin vél.

Var flogið eftir mörkum flugumferðarsvæða tveggja landa

Þá bætir Cox við enn og aftur að það gefi auga leið að eftir að malasíska farþegaþotan hvarf af ratsjá hafi verið reynt að fljúga henni viljandi eftir leiðum til að komast hjá því að hún kæmi fram á ratsjá og hafi það sést vel á því að vélinni var flogið milli flugumferðarsvæða tveggja landa áður en henni var beygt af leið, lengst suður í Indlandshaf.

„MH370 flaug nákvæmlega yfir þrjá staðsetningarpunkta sem eru á mörkum tveggja flugleiðsögusvæða - Það er gert til að villa fyrir löndunum sem gera ráð fyrir því að „hitt“ landið hafi stjórn með vélinni“, segir Cox.

„Það er mjög augljóst að flug MH370 var látið hverfa viljandi þar sem öll fjarskipti frá vélinni voru aftengd, ný flugleið sett inn í flugtölvuna og flogið á „landamærum“ tveggja flugumferðarsvæða“, segir Cox.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga