flugfréttir

Ítarleg flugáætlun Icelandair með Boeing 767 vélunum

28. janúar 2016

|

Frétt skrifuð kl. 09:42

TF-UNC á flugvellinum í Shannon á Írlandi

Icelandair hefur seinkað breiðþotufluginu um hálfan mánuð en upphaflega stóð til að hefja flug með tveimur Boeing 767 vélum þann 15. apríl en samkvæmt nýrri áætlun mun áætlunarflug með vélunum hefjast þann 1. maí.

Icelandair hefur einnig fjölgað þeim áfangastöðum sem Boeing 767 vélarnar munu fljúga til og verða vélarnar notaðar í flugs reglulega til sjö áfangastaða auk þess sem 3 borgir munu fá vélarnar í nokkur skipti.

Boeing 767 verður notuð daglega í flugi til London Heathrow og New York (JFK) frá og með 1. maí en frá og með 15. maí verður Amsterdam og Boston bætt við breiðþotuflugið.

22. maí mun Toronto bætast við og Minneapolis daginn eftir og þann 3. júní verður Boeing 767 notuð til Chicago sem er nýr áfangastaður félagsins.

Þá verður Boeing 767 vélunum einnig flogið nokkrum sinnum til Genf í Sviss og til Parísar í júní og í þrjú skipti til Frankfurt í september.

Boeing 767 vélarnar taka yfir 40% fleiri farþega en Boeing 757-200 vélar Icelandair sem hafa sæti fyrir 183 farþega en Boeing 767-200ER vélarnar koma með sætum fyrir 262 farþega.

Ítarleg flugáætlun fyrir Boeing 767 vélar Icelandair er eftirfarandi:

Frá og með 1. maí 2016 - Keflavík - London Heathrow - FI450 / 451 - Daglega
Frá og með 1. maí 2016 - Keflavík - New York Kennedy Intl. - FI615 / 614 - Daglega
Frá og með 15. maí 2016 - Keflavík - Amsterdam - FI500 / 501 - Daglega
Frá og með 15. maí 2016 - Keflavík - Boston - FI631 / 630 - Daglega (nema 22 maí - 7. sept.)
Frá og með 22. maí 2016 - Keflavík - Toronto - FI603 / 602 - 3 x í viku til 1. júní
Frá og með 23. maí 2016 - Keflavík - Minneapolis - FI657 / 656 - 4 x viku / 3 x viku frá 4. jún til 6. sep
Frá og með 3. júní 2016 - Keflavík - Chicago - 4 x í viku til 7. september


Boeing 767 verður einnig notið til flugs til eftirfarandi borga í Evrópu:

Frá 13. júní til 15. júní - Keflavík - Geneva
Aðeins 23. júní - Keflavík - París Charles de Gaulle - F542 / 543
Frá 18. til 21. júní - Keflavík - Frankfurt - FI520 / 521







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga