flugfréttir

Júmbó-þota Iron Maiden skemmd eftir óhapp í Chile í morgun

12. mars 2016

|

Frétt skrifuð kl. 15:19

Verið var að draga vélina á eldsneytisstæði til að fylla á hana fyrir brottför þegar beislið losnaði

„Ed Force One“, júmbó-þota hljómsveitarinnar Iron Maiden er skemmd eftir óhapp sem átti sér stað er flugvallarökutæki var ekið á báða hreyfla vélarinnar á vinstri væng á flugvellinum í Santiago í Chile í morgun.

Atvikið átti sér stað á hádegi í dag að íslenskum tíma en Iron Maiden hélt tónleika í Santiago í gær fyrir framan 52.000 tónleikagesti og var hljómsveitin að undirbúa brottför Argentínu þegar atvikið átti sér stað en næstu tónleikar eru á morgun í argentínsku borginni Cordoba.

Verið var að draga vélina á eldsneytisstæði þar sem fylla átti á hana fyrir brottför þegar dráttarbeisli losnaði.

Þegar starfsmaður ökutækisins áttaði sig á því að beislið hafði losnað, forðaði hann sér undan vélinni sem rann áfram á 20 km/klst hraða með því að beygja til hliðar með þeim að ökutækið varð undir hreyfli númer 2 en ytri hreyfillinn (nr. 1) varð einnig fyrir skemmdum.

Tveir flugvallarstarfsmenn slösuðust og voru þeir fluttir á sjúkrahús en meiðsl þeirra eru ekki talin alvarleg.

Flugvirkjar á flugvellinum í Santiago hafa verið að skoða ástandið á hreyflunum svo hægt sé að halda áfram tónleikaferðinni „The Book of Soul“ en allt bendir til þess að tjónið sé frekar mikið og gæti þurft að skipta um báða hreyflana.

Iron Maiden segir í yfirlýsingu á vefsíðu sinni að sem betur fer hafi ekki verið búið að setja allan búnaðinn um borð fyrir tónleikana sem vegur um 20 tonn en verið er vinna að því að ná til Cordoba fyrir tónleikana á morgun.





















  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga