flugfréttir

Brak með Rolls-Royce merkinu finnst á strönd í Suður-Afríku

22. mars 2016

|

Frétt skrifuð kl. 19:33

Brakið sem Neels Kruger fann í gær á strönd nálægt bænum Mossel Bay

Mjög líklegt þykir að brak sem fannst í gær á strönd á Suður-Afríku tilheyri malasísku farþegaþotunni en meira en helmingur braksins er þakinn merki Rolls-Royce hreyflaframleiðandans.

Á myndunum hér að neðan má bæði sjá merki Rolls-Royce á brakinu sem fannst, sem er um 70 cm á lengd, og merkið eins og það lítur út á Boeing 777 vél Malaysia Airlines.

Samgönguráðherra Malasíu tilkynnti í dag að brak hefði fundist á strönd í Suður-Afríku og væri sennilega um að ræða hlíf af hreyfli á farþegaþotu.

Það var íbúi á svæðinu sem fann brakið klukkan 13:30 að staðartíma í gær þar sem það lá í sandi á strönd nálægt Klein Brak River við bæinn Mossel Bay sem er í um 330 kílómetra fjarlægð austur af Höfðaborg.

Malasíska farþegaþotan sem hvarf hafði Trent 800 hreyfla frá Rolls-Royce

Sá sem fann brakið í gær heitir Neels Kruger og er fornleifafræðingur sem var í göngutúr er hann kom auga á einhvern hlut í sandinum.

„Sem fornleifafræðingur þá á maður það oft til að horfa niður fyrir sig til að vita hvort maður komi auga á eitthvað sem fer framhjá flestum öðrum. Þegar ég snéri þessu við þá vissi ég strax að ég hefði fundið eitthvað merkilegt þegar ég kom auga á Rolls-Royce merkið“, segir Kruger í viðtali við Associated Press fréttastofuna.

Kruger tók myndir af brakinu og sendi vini sínum sem er flugstjóri sem sendi svo myndina áfram á aðra samstarfsfélaga sína sem eru flugmenn sem allir eru sannfærðir um að brakið sé hluti af hreyflahlíf.

Rolls-Royce merkið á Trent 800 hreyfli á Boeing 777 vél Malaysia Airlines

Kruger hafði því næst samband við flugmálayfirvöld í Suður-Afríku sem létu yfirvöld í Malasíu vita sem munu senda sérfræðinga og tæknilið til Suður-Afríku.

Malasíska farþegaþotan sem hvarf þann 8. mars árið 2014 var af gerðinni Boeing 777-200ER en allar vélar Malaysia Airlines koma með Trent 800 hreyflum sem framleiddur er af Rolls-Royce.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga