flugfréttir

Icelandair kaupir tvær Boeing 767 til viðbótar

- Fjórar Boeing 767-300 breiðþotur næsta vor

6. maí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 16:56

„Svörtuborgir“ (TF-ISN) í aðflugi að London Heathrow í dag

Icelandair hefur gengið frá kaupum á tveimur Boeing 767 vélum til viðbótar sem munu bætast við flugflotann á næstu mánuðum.

Vélarnar tvær verða einnig af gerðinni Boeing 767-300 og munu þær bætast við þær tvær Boeing 767 vélar sem félagið hefur fengið afhentar nú þegar en ein hóf sitt fyrsta áætlunarflug sl. sunnudag og mun sú seinni byrja að fljúga þann 15. maí.

Boeing 767 vélarnar, sem Icelandair Group hefur nú fest kaup á, verður einnig breytt í samræmi við aðrar vélar Icelandair í flotflotanum og er gert ráð fyrir að þeim breytingum verði lokið fyrir ársbyrjun 2017.

Icelandair mun því koma til með að vera með fjórar Boeing 767 breiðþotur næsta vor.

Um borð í Boeing 767 breiðþotu Icelandair

Bogi Nils Bogason, framkvæmdarstjóri fjármála hjá Icelandair Group, segir í samtali við Alltumflug.is að vélarnar komi frá Air New Zealand og verða vélarnar notaðar einnig í flugi til þeirra áfangastaða þar sem eftirspurn eftir flugsætum er mikil.

„Áætlunin er að, eins og með hinar, að nota þær þar sem er há sætanýting en svo opna breiðþoturnar líka meiri tækifæri“, segir Bogi.

Aðspurður hvort stefnan sé að skoða aðra nýja markaði svarar Bogi að svo sé ekki stefnan eins og er en aldrei að vita hvað síðar verður.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga