flugfréttir

Allar fjögurra hreyfla þotur hverfa innan árs úr flota Cathay Pacific

17. ágúst 2016

|

Frétt skrifuð kl. 15:05

Airbus A340 þotur Cathay Pacific

Cathay Pacific ætlar sér að vera búið að losa sig við allar Airbus A340-300 þoturnar á næsta ári á sama tíma og félagið mun taka inn nýjar Airbus A350-900 vélar.

Cathay Pacific hefur haft þrjár tegundir úr A340-fjölskyldunni í gegnum tíðina, Airbus A340-200 og Airbus A340-600 en félagið hefur núna aðeins fimm A340-300 vélar eftir.

Tvær þessara A340-300 véla munu fara úr flotanum á þessu ári og hinar þrjár árið 2017 en Cathay Pacific hefur fengið þrjár splunkunýjar Airbus A350-900 þotur á þessu ári og munu 22 eintök bætast við á næstu árum og þar af tíu árið 2017 en vélarnar munu einnig leysa af hólmi júmbó-þotur félagsins.

Cathay Pacific hefur þrjár Boeing 747-400 þotur en þær eiga aðeins nokkrar vikur eftir og verða farnar úr flotanum fyrir 1. október í haust en síðasta flugið með þeim verður flogið þann dag frá Haneda-flugvellinum í Tókýó til Hong Kong.

Þótt að allar fjögurra hreyfla þotur Cathay Pacific munu heyra sögunni til á næsta ári þá verður félagið samt með nýjar Boeing 747-8 fraktþotur í flota Cathay Pacific Cargo.

Boeing 747 þota Cathay Pacific í lendingu á Heathrow í London







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga