flugfréttir

Finnair á leið til Íslands

- Auðveld tenging til að fljúga áfram til Asíu

18. ágúst 2016

|

Frétt skrifuð kl. 14:02

Airbus A320 þota Finnair

Finnair hefur boðað komu sína til Íslands og mun félagið hefja flug til hingað til lands frá Helsinki næsta vor.

Flogið verður frá Helsinski og verður fyrsta flugið þann 11. apríl en Ísland er meðal nokkurra nýrra áfangastaða sem félagið hefur kynnt í Finnlandi en aðrir áfangastaðir sem bætast einnig við leiðarkerfi flugfélagsins finnska næsta vor eru Corfu, Menorca og Ibiza.

Finnair mun fljúga til Íslands yfir sumarið fram til 28. október 2017 og verður flogið fjórum sinnum í viku með þotum af gerðinni Airbus A320.

Airbus A340 þota Finnair í aðflugi að flugvellinum í Hong Kong

Með flugi Finnair til Íslands opnast Asíumarkaðurinn enn betur fyrir Íslendinga sem munu geta með auðveldum hætti flogið áfram til Asíu en Finnair flýgur til fjölmargra áfangastaða í Austurlöndum fjær.

Meðal áfangastaða Finnair í Asíu er Bangkok, Peking, Chongqing, Xian og Shanghai í Kína, Delhi, Guangzhou, Ho Chi Minh í Víetnam, Hong Kong, Seoul í Suður-Kóreu, Tókýó, Fukuoka, Osaka og Nagoya í Japan.

Hingað til hefur Icelandair verið eina flugfélagið sem hefur boðið upp á flug til Helsinki en Finnland hefur verið sú Norðurlandaþjóð sem hefur haft fæstar tengingar í flugsamgöngum til og frá Íslandi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga