flugfréttir
Tafir á afhendingum á A350 hefur áhrif á vöxt Finnair
Airbus A350-900 þota Finnair á flugvellinum í Hong Kong
Finnair telur að umsvif félagsins og áframhaldandi vöxtur leiðarkerfisins árið 2017 verði ekki eins mikil og til var ætlast en flugfélagið finnska kennir Airbus um þar sem tafir hafa orðið á afhendingum á nýjum Airbus A350 þotum.
Finnair var fyrsta evrópska flugfélagið til að fá Airbus A350-900 þotuna afhenta og hefur félagið fengið sex slíkar þotur í flotann
en afhendingar eru næstum tveimur mánuðum á eftir áætlun.
Finnair hefur m.a. neyðst til þess að taka á leigu aðrar vélar á meðan til að fljúga þær flugferðir sem framundan eru þótt það
sé dýrkeyptara en félagið ákvað að gera það frekar í stað þess að aflýsa flugferðum.
Pekka Vauramo, framkvæmdarstjóri Finnair, segir að tafir á afhendingum á Airbus A350 hafi m.a. haft áhrif á þjálfun áhafna fyrir vélarnar
og gert það að verkum að félagið getur ekki tekið úr umferð gömlu Airbus A340 þoturnar strax.
Finnair mun koma til með að hafa sjö Airbus A350-900 þotur í flotanum fyrir lok þessa árs og þá á félagið að fá fjórar til viðbótar
árið 2017 og átta seinustu koma í flotann fyrir árið 2023.
Góðu fréttirnar eru hinsvegar þær að Finnair er farið að finna fyrir auknum eldsneytissparnaði með þær sex Airbus A350 þotur sem félagið hefur haft nú í flotanum sem dregur úr rekstrarkostnaði félagsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.