flugfréttir

Um 3.000 tré verða felld í kringum Seattle-Tacoma flugvöll

19. ágúst 2016

|

Frétt skrifuð kl. 07:47

Boeing 757 vél Icelandair í flugtaki á Seattle-Tacoma flugvellinum

Til stendur að fella tæp 3.000 tré í nágrenni Seattle-Tacoma flugvallarins í Bandaríkjunum í þeim tilgangi að auka útsýni þeirra flugmanna sem lenda flugvélum á vellinum.

Port of Seattle gerðir ráð fyrir að skógarhöggið muni taka þrjú ár en tilgangur þess er til að tryggja óhindrað aðflug og brottför frá flugvellinum sem er sá stærsti við norðvesturströnd Bandaríkjanna.

Skógarhöggið er hluti af verkefninu Flight Corridor Safety Program og sendur til að fella 2.750 tré til ársins 2019 en fyrstu trén verða felld í haust en ný tré verðar gróðursett í stað þeirra sem verða fjarlægð. Kostnaðurinn við skógarhöggið nemur 104 milljónum króna eða sem samsvarar 37.000 krónum á hvert tré.

Fyrirhugað skógarhögg við Seattle-Tacoma flugvöllinn hefur samt sem áður valdið deilum en Peter Kwon, þingmaður í Washington-fylki, hefur varpað fram þeirri spurningu hvort að bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa leyfi til þess að láta fella niður þessi tré.

Miklir skógar og trjágróður er í Seattle

Ted Flick, framkvæmdarstjóri Port of Seattle, segir að ef flugvallaryfirvöld grípi ekki til aðgerða munu trén valda því að flugvöllurinn muni ekki lengur geta framfylgt þeim öryggiskröfum sem gerðar eru til vallarins sem gæti valdið því að FAA muni takmarka það fjármagn sem rennur til Seattle-Tacoma flugvallarins.

Þá hafa aðilar innan Port of Seattle einnig verið mótfallnir því að tréin verða fjarlægð og leggja til að skógarhöggið verði metið og sett undir nefnd sem gerir úttekt á þeim afleiðingum sem það geti haft í för með sér að fella trén.

Kwon segir einnig að skógarhöggið muni hafa áhrif á þá íbúa sem búa í nágrenninu og tekur fram að stór, fullvaxin tré nái að fjarlægja mun meira magn af koltvíoxíði en minni tré sem eru aðeins nokkurra ára gömul.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga