flugfréttir
Ölvaður flugstjóri stöðvaður frá því að fljúga Airbus A330
Airbus A330 þota SriLankan Airlines á flugvellinum í Frankfurt
Flugstjóri hjá SriLankan Airlines var stöðvaður frá því að fljúga farþegaþotu af gerðinni Airbus A330 á flugvellinum í Frankfurt sl. föstudag eftir að hann mætti ölvaður út á flugvöll.
274 farþegar áttu bókað með flugi UL554 frá Frankfurt til Colombo í Sri Lanka en eftir að í ljós kom að flugstjórinn stóðst ekki áfengispróf þurfti að fresta brottför og varð 15 klukkutíma seinkun á fluginu þar
sem nauðsynlegt var að koma öðrum flugstjóra til Þýskalands til að fljúga vélinni til baka.
Grunsemdir vöknuðu meðal annarra áhafnarmeðlima er þeir tóku eftir því að hegðun og hátterni flugstjórans var frekar undarleg
og var strax tali að hann væri undir áhrifum áfengis.
SriLankan Airlines vinnur að rannsókn málsins í samvinnu með þýskum flugmálayfirvöldum en flugfélagið mun hætta að fljúga
til Frankfurt í október þar sem félagið er að skera niður umsvif sín til Evrópu þar sem fjárhagsstaða SriLankan hefur verið mjög slæm
að undanförnu.
Skuldir flugfélagsins nema yfir 116 milljörðum króna og hefur SriLankan sótt um leyfi til þess að fá erlenda fjárfesta inn í rekstur
félagsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.