flugfréttir

Metfjöldi erlendra flugmanna streymir til Kína

- Aðeins 12 flugskólar í landi þar sem íbúafjöldinn er 1,3 milljarður

23. ágúst 2016

|

Frétt skrifuð kl. 12:54

Talið er að flugfloti kínversku flugfélaganna eigi eftir að þrefaldast á næstu 20 árum

Metfjöldi erlendra flugmanna hefur verið ráðinn til starfa hjá flugfélögum í Kína en kínverskum flugfélög halda áfram að ráða flugmenn frá öðrum löndum vegna alvarlegs skorts á kínverskum atvinnuflugmönnum sem hafa nægilega góða reynslu.

Metfjöldi ráðninganna er tilkomin vegna gríðarlegra umsvifa hjá kínverskum flugfélögum en kínversk stjórnvöld gera ráð fyrir að þörf sé á allt að 3.000 nýjum atvinnuflugmönnum árlega í Kína á næstu fimm árum.

Kína er fjölmennasta land í heimi en þrátt fyrir það eru aðeins 12 flugskólar í landinu sem ná að útskrifa aðeins 1.200 nýja atvinnuflugmenn á ári sem er ekki nægilegur fjöldi til þess að anna eftirspurninni meðal kínversku flugfélaganna.

Flugfélög í Kína laða erlenda atvinnuflugmenn til sín með háum launaseðlum, freistandi fríðindum og bónusgreiðslum en fyrir 10 árum síðan var afar sjaldgæft að kínversk flugfélög réðu til sín erlenda flugmenn en þau fengu leyfi til þess frá stjórnvöldum í Kína árið 2007.

Kínversk flugfélög á flugvellinum í Shanghai

Fyrsta flugfélagið til að ráða erlenda flugmenn var Spring Airlines í Shanghai sem réð til sín flugmenn frá Suður-Kóreu en skömmu síðar fylgdu fleiri flugfélög í kjölfarið og atvinnuflugmenn frá Ástralíu, Suður-Ameríku, Bandaríkjunum, Singapore og Suður-Kóreu fóru að streyma til Kína.

Samkvæmt tölfræði Boeing þá er talið að floti kínversku flugfélaganna eigi eftir að þrefaldast á næstu 20 árum sem þýðir að þörf sé á yfir 100.000 flugmönnum í Kína til ársins 2036.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga