flugfréttir
Hátt eldsneytisverð í Nígeríu hrekur flugfélög yfir til Ghana
Airbus A330 þota Air France og Boeing 777 þota Emirates á flugvellinum í Lagos í Nígeríu
Nokkur flugfélög, sem hafa flogið til Nígeríu, hafa ákveðið að færa skrifstofur sínar og starfsemi yfir til borgarinnar Accra í nágrannalandinu Ghana og fljúga þangað þess í stað.
Ástæðan er sögð vera hátt eldsneytisverð í Nígeríu en meðal þessara flugfélaga er Emirates sem mun þess í stað fljúga frá Dubai til Accra en fljúga yfir til Nígeríu til að sækja
farþega og fljúga því næst aftur til Accra til að fylla á vélina fyrir flugið til baka til Dubai.
Þar sem að nígeríski gjaldmiðillinn „naira“ hefur veikst mikið hefur eldsneytisverð í Nígeríu hækkað upp úr öllu valdi hátt eldsneytisverð hefur verið að setja svartan blett
á flugmálin í landinu en líterinn á Jet A-1 þotueldnseyti í Nígeríu er meira en 100% dýrari víðast hvar heldur en á flugvöllum í Ghana.
Yfirmaður flugmála í Nígeríu segir að sum flugfélög séu einnig farin að reyna að fá farþega til að ferðast yfir til Ghana til að taka þaðan flug áfram út í heim og þá sé vitað
til þess að stjórnvöld í Ghana ætli að nýta sér tækifærið til að laða til sína fleiri erlend flugfélög.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.