Þótt margir Íslendingar sem eru á leið til útlanda láti keyra sig út á flugvöll eða taki leigubíl, þá er einnig mjög stór hópur fólks sem fer á einkabílnum
og geymir hann við flugstöðina.
Við Leifsstöð eru langtímabílastæði og greiðir maður bílastæðagjald eftir því hversu lengi maður er erlendis.
Alltumflug.is gerði könnun og verðsamanburð á stærstu flugvöllum Evrópu ef gefið er að bíll sé geymdur í eina viku.
Einnig kemur fram ef bíl er geymdur í einn sólarhring.
Í ljós kom að Keflavíkurflugvöllur er í 16. sæti yfir ódýrustu langtímabílastæði í Evrópu eða í 53.sæti yfir þá dýrustu af þeim 68 flugvöllum
sem verðkönnunin náði til en að geyma bílinn í eina viku við Leifsstöð kostar 5.600 krónur.
Sá langdýrasti er London City-flugvöllurinn en að leggja bíl sínum í langtímastæði þar kostar rúmar 47.000 krónur en völlurinn þjónar einungis
viðskiptahverfi borgarinnar og hefur verið þekktur fyrir að vera í dýrari kantinum.
Ódýrasti flugvöllur Evrópu að leggja bílnum er á flugvellinum í Tírana, höfuðborg Albaníu en vikan þar kostar aðeins 3.428 krónur
Ef litið er á löndin út af fyrir sig þá kom í ljós að Þýskaland og Ítalía eru frekar dýrari en önnur lönd en Spánn og lönd í Austur-Evrópu
í ódýrari kantinum.
Af Norðurlöndunum er dýrast að leggja bíl sínum við Gardermoen-flugvöll í Osló en ódýrast við Vantaa-flugvöll í Helsinki.
Hér að neðan má sjá listann í heild sinni og má smella á listann til að fá upp stærri mynd.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsn
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni