flugfréttir

Air France íhugar að stofna lágfargjaldafélag fyrir langflug

- Stefnt á að endurheimta markaðshlutdeild sína í langflugi

23. september 2016

|

Frétt skrifuð kl. 14:38

Flugvélar Air France

Air France hefur lýst því yfir að móðurfélagið, Air France-KLM, hafi uppi áform um að fara í samstarf um lágfargjaldaflug til þess að endurheimta aftur markaðstöðu sína í flugi til fjarlægra áfangastaða en Air France hefur misst hlutdeild sína í langflugi til annarra flugfélaga.

Það var Jean-Marc Janaillac, framkvæmdarstjóri Air France, sem lýsti þessu yfir en hann tók fram að Air France sé komið með nýja samkeppnisaðila og verði félagið því að grípa til aðgerða til að vera áfram samkeppnishæft.

„Við getum ekki sagt hvaða ráð við ætlum að grípa til en við erum að skoða nokkra möguleika en við vitum ekki enn hver besta lausnin er til þess að glíma við lágfargjaldafélög sem eru að fljúga langflug í samkeppni við okkur“, sagði Janaillac í samtali við Bloomberg TV.

Meðal nýrra flugfélaga sem eru að veita Air France samkeppni eru t.a.m. Norwegian og nýja franska lágfargjaldafélagið French Blue en þá hefur flugfélagið franska einnig fundið fyrir samkeppni frá Etihad Airways, Qatar Airways og Turkish Airlines.

Að koma á fót sérstöku lágfargjaldaflugfélagi í langflugi er ekki ný hugmynd hjá Air France en fyrrum framkvæmdarstjóri félagsins, Alexandre de Juniac, hafði einnig minnst á þau áform eftir að í ljós kom að aðeins 50% af öllu langflugsleiðarkerfi Air France væri að skila hagnaði.

Ef Air France myndi stofna nýtt dótturfélags fyrir lágfargjaldaflug þá myndi það kalla á aukinn launakostnað og nýja kjarasamninga sem er skref sem hefur reynst flugfélaginu mjög erfitt hingað til sem m.a. hefur valdið deilum og verkfallsaðgerðum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga