flugfréttir

30 starfsmenn TUI drógu Boeing 737 þotu með kaðli

21. október 2016

|

Frétt skrifuð kl. 10:39

150 farþegar voru um borð í vélinni þegar þrjátíu starfsmenn TUI tóku sig til og drógu vélina

Þeir voru heldur betur hissa farþegarnir sem höfðu komið sér fyrir í sæti um borð í farþegaþotu TUIfly á flugvellinum í Brussels þegar hersing starfsfólks kom aðvífandi og byrjaði að draga vélina með kaðli skömmu fyrir brottför til Spánar í gær.

Vélin var á leið til Malaga í gærmorgun og beið hún eftir brottför á flughlaðinu þegar 30 starfsmenn TUIfly mættu með kaðal og drógu vélina með 150 farþega innanborðs auk farangurs og eldsneytis.

Gjörningurinn var gerður í tilefni þess að flugið í gær til Malaga var fyrsta flugið undir nýju nafni TUIfly sem héðan í frá verður flogið undir nafninu TUI og það sama mun gilda um flugfélögin Thomsonfly, Arkefly, Jetairfly og TUIfly Nordic sem stendur til að sameina undir merki TUI.

Flugvélatogið hefur verið í nokkra mánuði í undirbúningi en gjörningnum var haldinn leyndum fyrir farþegana þar til á síðustu stundu.

Bæði TUI og TUIfly eru dótturfélög TUI Group en á fimmtán árum hefur starfsmönnum TUI í Belgíu fjölgað úr 400 upp í 2.080 manns en fyrirtækið stefnir á enn frekari umsvif í Belgíu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga