flugfréttir
Hawaiian ekki brotlegt fyrir að hafa vigtað farþega fyrir brottför
- Íbúar Amerísku Samóa-eyja mun þyngri en þeir sem fljúga til Japans
Hawaiian Airlines vigtaði alla þá farþega sem flugu á milli Hawaii og Amerísku Samóa-eyja og komst að því að flestir þeirra voru of þungir
Hawaiian Airlines hefur unnið mál sem höfðað var gegn félaginu sem hefur sl. sex mánuði vigtað farþega á ákveðnum flugleiðum í tilraunaskyni áður en þeir gengu um borð í vélar félagsins.
Hawaiian Airlines hefur nýlega komist að því að meðalþyngd þeirra farþega sem fljúga með félaginu er meiri en félagið gerði ráð fyrir
en sl. sex mánuði hefur félagið framkvæmt tilraunir með að vigta þá farþega sem fljúga á milli Hawaii og Amerísku Samóa-eyjum
til þess að fá skýrari mynd af meðalþyngd farþega sem reynist mun meiri en flugiðnaðurinn gerir ráð fyrir.
Félagið hefur í dag hætt að bjóða þeim farþegum, sem bóka flug á milli Honolulu og Pago Pago á Amerísku Samóa-eyjum, að velja sér sæti
en þess í stað hafa þeir verið vigtaðir fyrir brottför og úthlutað sæti með þeim hætti að hægt verði að koma á jafnvægi á hleðslu vélarinnar
svo þyngdardreifingin sé rétt.
Margir farþegar hafa verið ósáttir við aðgerðir Hawaiian Airlines
Margir farþegar hafa mótmælt þessum aðgerðum en flestir þeirra eru íbúar Amerísku Samóa-eyja en íbúar eyjanna eru meðal þeirra þyngstu í heimi en þjóðin er í 4. sæti yfir offitu samkvæmt mælingum sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) heldur utan um og er talið að 74% þjóðarinnar sé langt yfir kjörþyngd en aðrar tölur segja að 96% íbúa eigi við offitu að stríða.
Íbúar Amerísku Samóa-eyja ættu ekki að vera mjög óvanir því að vera vigtaðir þar sem flugfélagið á eyjunum, Samoa Air,
byrjaði árið 2013 að vigta farþega og láta hvern og einn greiða fargjald samkvæmt líkamsþyngd en þeir sem vilja
greiða minna fyrir farmiðann geta gert það með því að grenna sig.
Bandaríska samgönguráðuneytinu hafði borist sex formlegar kvartanir vegna vigtunaraðgerða Hawaiian Airlines
en þeim hefur öllum verið vísað frá á þeim forsendum að þyngd farþega og rétt þyngdardreifing geti komið í veg fyrir flugslys.
„Hefur verið þá óöruggt að fljúga allan tímann?“
Einn farþegi sem tjáði sig um málið á útvarpsstöð á Nýja-Sjálandi sakar Hawaiian Airlines um að mismuna farþegum og segir Hawaiian Airlines svara fyrir sig með afsökunum um að öryggismál sé að ræða og spyr hann þá hvort það hafi verið þá í allan þennan tíma óöruggt að fljúga ef ekki var spáð í þyngdardreifingu fyrr en allt í einu núna.
Hawaiian Airines gerir nú ráð fyrir að þurfa endurskoða þyngdardreifingu í flugi sínu frá Hawaii til Amerísku Samóa-eyja en félagið segir
að engar áhyggjur sé að hafa varðandi þyngd farþega frá Hawaii til Japans og Suður-Kóreu þar sem þeir eru vel innan við meðalþyngd.
Talsmaður Hawaiian Airlines segir að farþegar á Amerísku Samóa-eyjum þurfi ekki lengur að stíga á vigtina þar sem tilraunum er lokið
en félagið mun þó þurfa að passa að þyngdardreifingin sé ávallt rétt.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.