flugfréttir
Fyrsta kínverska Airbus A330 þotan verður afhent frá Tianjin í ár
Líkan af Airbus A330 breiðþotu sem var til sýnis í mars í fyrra þegar fyrsta skóflustungan var tekin að nýrri frágangs- og afhendingarverksmiðju í Tianjin
Fyrsta kínverska Airbus A330 breiðþotan verður afhent síðar á þessu ári frá verksmiðjum flugvélaframleiðandans í Tianjin en hingað til hafa aðeins verið framleiddar Airbus A320 þotur í Kína.
Til stendur að afhenda fyrstu kínversku A330 þotuna í september en Airbus gerir ráð fyrir að starfsemi verksmiðjunar
verði orðin stöðug árið 2019 en verksmiðjurnar í Tianjin voru teknar í notkun árið 2008.
Í mars árið 2016 hófust framkvæmdir á lokafrágangs- og afhendingarmiðstöð fyrir Airbus A330 í Tianjin en þar verður innréttingum
komið fyrir í vélarnar, þær málaðar og því næst afhentar til viðskiptavina í Kína.
Airbus afhenti 153 þotur til kínverskra viðskiptavina sinna árið 2016 og þar af voru tólf Airbus A330 breiðþotur afhentar til Kína en
eftir tvö ár er gert ráð fyrir að hægt verði að afhenda tvær Airbus A330 breiðþotur á mánuði frá verksmiðjunum í Tianjin.
Þess má geta að alls eru 1.383 Airbus-þotur í umferð í Kína.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.