flugfréttir

Sektað um 22 milljónir fyrir að hafa tekið loftmyndir með drónum án leyfis

18. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:01

Fyrirtækið SkyPan International hefur tekið loftmyndir í 28 ár

Drónafyrirtæki í Bandaríkjunum, sem sérhæfir sig í myndatöku úr lofti, hefur samþykkt að greiða 200.000 bandaríkjadali í sekt til bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sem telur að fyrirtækið hafi brotið lög með því að fljúga myndatökudrónum í nokkur ár ítrekað innan flugumferðarsvæða í Chicago og í New York án heimildar.

Fyrirtækið, SkyPan International, ákvað að ná sáttum í málinu og greiða sektina sem samsvarar 22,4 milljónum króna og samþykkja að greiða enn frekar 16,8 milljónir króna í sekt ef fyrirtækið brýtur aftur lög á þessu ári.

SkyPan International játar samt ekki brotin í dómnum og telur fyrirtækið að það hafi ekki flogið drónum við myndatökur inn á svæði sem tilgreind eru sem bannsvæði vegna flugumferðar og ákvað fyrirtækið því að ljúka málinu með sektargreiðslu.

FAA fór upphaflega fram á sekt upp á 213 milljónir sem hefði verið hæsta sekt sem um getur í máli þar sem drónaeigandi flýgur fjarstýrðu flygildi án leyfis inn á svæði sem tilgreint er sem flugumferðarsvæði.

Bandarísk flugmálayfirvöld segja að SkyPan hafi 65 sinnum flogið dróna við myndatöku án heimildar á tveggja og hálfs árs tímabili, frá 21. mars árið 2012 til 15. desember 2014.

Höfuðstöðvar bandarískra flugmálayfirvalda (FAA)

FAA segir að SkyPan skorti tilskilin réttindi og leyfi fyrir drónaflugi og þá er því haldið fram að drónar í eigu fyrirtækisins séu ekki útbúnir búnaði sem kemur í veg fyrir að dróninn fari nálægt flugvöllum og lofthelgi.

Það tímabil sem brotin áttu sér stað voru bandarísk flugmálayfirvöld ekki búin að semja þær reglugerðir sem eru í notkun í dag varðandi drónaflug.

Hafa myndað byggingarsvæði fyrir verktaka í mörg ár

SkyPan segir að fyrirtækið hafi verið í loftmyndatökubransanum í 28 ár þar sem bæði hafa verið notaðir drónar, þyrlur og fjarstýrðar þyrlur og þá hefur í flestum tilvikum staðið yfir myndataka á opnum svæðum fyrir verktakafyrirtæki sem eru að undirbúa framkvæmdir á nýjum byggingum.

Nýlegar drónareglur FAA kveða á um að fyrirtæki á borð við SkyPan megi fljúga drónum innan flugumferðarsvæða en það verði að gera í samvinnu við flugumferðarstjóra með viðeigandi leyfi.

„SkyPan hefur aldrei ollið vandræðum eða slysi og munum við halda áfram að framfylgja öryggi við myndatökur með ítrustu varúð“, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Nokkrar af þeim myndum sem fyrirtækið hefur tekið:











  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga