flugfréttir

Lamborghini notaður sem „follow me“ bíll í Bologna

- Myndband: Fylgir Boeing 777-300ER þotu Emirates að hliði

21. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 10:35

Lamborghini Huracán fylgir þotu Emirates að hliði

Það er ekki á hverjum degi sem að farþegaþota fær fylgd með Lamborghini en það gerðist þó á dögunum á Ítalíu farþegum til mikillar undrunar.

Boeing 777-300ER frá Emirates var nýlent á flugvellinum í Bologna eftir flug frá Dubai þegar skærgulur Lamborghini Huracán kom aðvífandi og fylgdi vélinni frá brautinni.

Ítalir eru stoltir af þeim ökutækjum sem framleiddir eru í landinu og þá sérstaklega af Lamborghini og Ferrari en báðir bílarnir eru framleiddir „mótordalnum“ á Ítalíu í borgunum Bologna og Modena.

Guglielmo Marconi flugvöllurinn í Bologna ákvað í haust að uppfæra „eltu mig“ bílana, sem notaðir eru til að fylgja flugvélum um svæðið, með Lamborghini-sportbílum og eru þeir notaðir til að fylgja erlendum flugfélögum í tengslum við auglýsingarherferð framleiðandans í samstarfi við flugvöllinn.

Boeing 777-300ER þota Emirates er stærsta flugvélin sem lendir á flugvellinum í Bologna en þótt að Lamborghini Huracán nái 320 km/klst hraða þá er það bara þriðjungur af flughraða Boeing 777-300ER sem nær yfir 900 kílómetra hraða á klukkustund.

Hér að neðan má sjá myndband er Lamborghini bílinn fylgdi þotu Emirates að hliði á dögunum.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga