flugfréttir

26 milljarðar lítrar af eldsneyti hafa sparast með vænglingum

- 17.000 flugvélar í dag með winglets frá Aviation Partners Boeing (APB)

1. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:03

Aviation Partners hóf starfsemi sína árið 1991

Með tilkomu vængflipa („winglets“) hafa flugfélög í heiminum sparað sér umtalsverða fjármuni er kemur að eldsneytiskostnaði en á meðan margar flugvélar eru framleiddar með vænglingjum þá eru einnig framleiddir vængendar fyrir eldri vélar sem gera þær sparneytnari.

Fyrirtækin Aviation Partners (API) og Aviation Partners Boeing (APB) hafa tilkynnt að vænglingarnir „Blended Winglet“ og „Split Scimitar Winglet“ hafa í dag náð að spara flugfélögum og flugrekstaraðilum í einkaþotufluginu um 7 milljörðum gallon af þotueldsneyti sem vélarnar hefðu annars eytt án vænglinga.

Þetta samsvarar 26 milljörðum lítra af eldsneyti en með slíku magni af eldsneyti mætti fylla 619.047 Boeing 757 þotur af eldsneyti.

Árlega spara flugfélögin um 500,000 gallon af eldsneyti með vænglingjum frá fyrirtækinu og við það hefur náðst að drag úr kolefnalosun út í andrúmsloftið um 5 milljón tonn.

Split Scimitar Winglet á Boeing 737-800

Vænglingar draga úr því viðnámi loftsins sem hvirflar frá vængendanum valda sem gerir það að verkum að flugvélin eyðir minna eldsneyti og getur þar af leiðandi flogið lengri vegalengdir.

Á vefsíðunni aviationpartners.com má sjá teljarar sem áætlar hversu mikið flugvélar með vængflipa frá fyrirtækinu hafa sparað af eldsneyti með tilkomu þeirra.

Aviation Partners var stofnað árið 1991 af hópi verkfræðinga sem höfðu áður starfað hjá Boeing og Lockheed en fyrstu vænglingarnir sem fyrirtækið framleiddi komu á markaðinn árið 1993 og var um að ræða vænglinga fyrir Gulfstream II einkaþotuna.

Það var ekki fyrr en árið 2000 að fyrsta Boeing 737 þotan hóf sig á loft með Blended Winglet vænglingum en það var vél frá Hapag-Lloyd og fljótlega hóf fyrirtæki að hanna vænglina fyrir Boeing 757 og fleiri þotur.

Blended Winglets vængflipa má í dag finna á 8 þúsund flugvélum í dag og þá er búið að koma fyrir Split Scimitar Winglet á 9,000 flugvélum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga