flugfréttir
Interjet fær sína fyrstu Airbus A320neo þotu
Fyrsta Airbus A320neo þotan fyrir Interjet
Mexíkóska flugfélagið Interjet hefur tekið við sinni fyrstu Airbus A320neo þotu af þeim 39 þotum sem félagið pantaði á sínum tíma.
Interjet er þriðja flugfélagið í Mexíkó til að fá Airbus A320neo vélina afhenta en VivaAerobus og Volaris
hafa bæði fengið þrjár vélar afhentar.
Þá á Interjet einnig eftir að fá tíu þotur af gerðinni Airbus A321neo.
Airbus hefur nú afhent 94 eintök af Airbus A320neo þotunni til 21 flugfélags en þau félög sem
hafa fengið vélina afhenta eru AirAsia, Air Astana, Air India, GoAir, ANA (All Nippon Airways), Avianca Brasil,
Azul Brazilian Airlines, China Southern, Citilink, Frontier, Hong Kong Express, IndiGo, LATAM, Lufthansa,
Pegasus Airlines, SAS, Spirit Airlines, SriLankan, VivaAerobús, Volaris og Interjet.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.