flugfréttir

Flugfélög sýna flugvellinum í Hróarskeldu áhuga

19. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:20

Flugvöllurinn í Roskilde

Svo gæti farið að flugvöllurinn í Hróarskeldu fái sitt fyrsta áætlunarflug með þotu til sín en nokkur flugfélög hafa sýnt flugi til Roskilde mjög mikinn áhuga.

Undirbúningurinn er þó skammt á veg komin en í dag eru tvö lítil flugfélög sem fljúga innanlandsflug um Roskilde Airport sem eru Copenhagen Air Tax og Starling Air.

Roskilde-flugvöllur hefur leyfi fyrir 121.000 flugtök og lendingar á ári en aðeins má nota 2.662 til farþegaflugs, leiguflugs og fraktflugs með vélum sem eru meira en 10 tonn á þyngd.

Frekari leyfi þarf að fá svo að stórar þotur geti hafið flug um völlinn en sveitarfélagið í Roskilde hefur nú gefið leyfi fyrir slíku flugi en fyrst þarf samt að breyta umhverfisstefnu sveitarfélagsins áður en það nær að ganga í gegn.

Stjórn flugvallarins vill ekki gefa upp hvaða flugfélög það eru sem hafa sýnt áhuga á því að fljúga til Roskilde en flugvöllurinn er í eigu Copenhagen Airport sem er staðsettur í aðeins 30 kílómetra fjarlægð til austurs.

„Flugfélög sækja um leyfi fyrir hugsanlegum áfangastöðum en það getur svo tekið smá tíma að fá samþykki“, segir Kasper Hyllested, fjölmiðlafulltrúi hjá Copenhagen Airport en boltinn er nú inn á borði ákvörðunarnefndar hjá umhverfisstofnun.

Mikið er um einka- og almannaflug með minni flugvélum á Roskilde Airport en lendingargjöld fyrir einkaflug á flugvellinum í Kaupmannahöfn eru mjög há og er því sjaldgæft að sjá litlar flugvélar á þeim flugvelli.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga