flugfréttir
Singapore Airlines mun hætta með fjórar A380 fyrir mars 2018
Airbus A380 risaþota Singapore Airlines
Singapore Airlines ætlar sér að hætta með fjórar Airbus A380 risaþotur fyrir mars árið 2018.
Risaþoturnar fjórar munu yfirgefa flota Singapore Airlines
áður en félagið mun taka við þremur
nýjum A380 risaþotum frá Airbus.
Risaþoturnar fjórar verða fyrstu Airbus A380 risaþoturnar
sem munu koma notaðar á markaðinn en fyrstu vélarnar
voru afhentar til Singapore Airlines árið 2006.
Elsta Airbus A380 risaþotan í flota Singapore Airlines
ber skráninguna 9V-SKA en félagið tók fyrstu vélarnar
á langtímaleigu frá DS Aviation/Doric Asset Finance.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.