flugfréttir
Framkvæmdir á flugstöð fyrir Alaska Airlines á Paine Field að hefjast
- Íbúar óttast hávaðamengun er farþegaflug hefst um heimavöll Boeing
Boeing 737 þota Alaska Airlines á Seattle-Tacoma flugvelli
Alaska Airlines ætlar að hefja framkvæmdir á nýrri flugstöð á Paine Field flugvellinum í Everett í tengslum við fyrirhugað áælunarflug um völlinn sem í dag er eingöngu notaður af Boeing og almennu einkaflugi.
Ekkert áætlunarflug fer um Paine Field flugvöllinn en Alaska Airlines tilkynnti í seinustu viku að félagið ætlaði sér að byrja að fljúga frá vellinum til nokkurra áfangastaða í Ameríku frá og með haustinu 2018.
Alaska Airlines ætlar sér að fljúga um Paine Field með Boeing 737 og Embraer-þotum en félagið vill ekki gefa of mikið upp varðandi fyrirhugaða áfangastaði.
„Eina sem ég get sagt er að við munum ekki fljúga bara stuttar flugleiðir frá Paine Field. Við ætlum að fljúga þaðan til vinsælustu áfangastaða okkar“, segir John Kirby, framkvæmdarstjóri Alaska Airlines.
Framkvæmdir við nýja flugstöð á vellinum mun hefjast í næsta mánuði en sýslustjórnin í Snohomish County hefur gefið leyfi fyrir áætlunarflugi með farþega um völlinn en bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) eiga þó eftir að gefa sitt leyfi fyrir fluginu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.