flugfréttir
Þörf á 6.400 nýjum þotum sem taka 70 til 130 farþega
Embraer E-190 þota frá Conviasa
Brasilíski flugvélaframleiðandinn Embraer spáir því að þörf sé á 6.400 nýjum farþegaþotum í heiminum fyrir árið 2036 í þeim stærðarflokki flugvéla sem koma með sæti fyrir 70 til 130 farþega.
Í nýjustu farþegaþotuspá Embraer er gert ráð fyrir að 63% af þessum vélum
muni uppfylla þörf fyrir aukningu í farþegaflugi á meðan 37 prósent vélanna
muni leysa af eldri vélar sem verða teknar úr umferð.
Talið er að mest verði aukningin í flugvélum sem hafa sæti fyrir 90 til 130 farþega
og muni flugfélög heimsins þurfa fyrir 4.120 slíkar þotur til viðbótar á næstu 19 árum.
Mest verður eftirspurnin í Norður-Ameríku og þá sérstaklega meðal svæðisflugfélaga
í Bandaríkjunum og næstmesta eftirspurnin verður í Asíu og á Kyrrahafssvæðinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.