flugfréttir
BA tekur á leigu níu Airbus-þotur frá Qatar Airways
British Airways ætlar að taka níu Airbus A320 þotur á leigu frá Qatar Airways
British Airways ætlar sér að taka á leigu níu Airbus A320 og Airbus A321 þotur frá Qatar Airways til að bregðast við yfirvofandi verkfalls sem skellur á þann 1. júlí næstkomandi.
Stefnt er á að taka vélarnar á leigu með áhöfnum en flugfreyjur og flugþjónar hjá British Airways
hafa lýst yfir meira en tveggja vikna verkfallsaðgerðum sem munu standa yfir frá 1. júlí til 16. júlí.
Leigan á vélunum níu mun koma Qatar Airways til góða þar sem félagið mun geta nýtt vélarnar
í útleigu en 20% samsdráttur hefur orðið í leiðarkerfi félagsins eftir að fjögur nágrannalönd Qatar
lokuðu lofthelgi sinni fyrir félaginu fyrr í þessum mánuði.
Frá 5. júní hefur Qatar Airways þurft að láta flugvélar sínar taka á sig krókaleið gegnum íranska
lofthelgi og yfir til Tyrkalands á fjölmörgum flugleiðum og hefur félagið vegna þessa þurft að
draga saman seglin.
Qatar Airways hefur sl. þrjár vikur aflýst um 30 flugferðum daglega en félagið hefur nú þegar
fallist á að leigja vélarnar níu til British Airways ætlar mögulega að nota þær lengur en fram til 16. júlí og
gæti farið svo að BA hafi vélarnar út sumarið.
British Airways hefur beðið bresk flugmálayfirvöld um leyfi til að taka Airbus A320 þoturnar á leigu
frá Qatar Airways en mjög sjaldgæft er að flugfélagið breska sé að taka þotur á leigu frá öðrum
flugfélögum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.