flugfréttir

Yfir 110 byggingar of háar í aðflugslínu að Bombay-flugvelli

- Gert að lækka hæð bygginganna þar sem þær virka sem hindrun

16. júlí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:48

Júmbó-þota Air India í aðflugi að flugvellinum í Bombay

Svo gæti farið að ráðist verði í að lækka yfir 110 byggingar í nágrenni alþjóðaflugvallarins í Bombay þar sem í ljós hefur komið að þær virka sem hindrun í aðflugi að flugbrautum vallarins.

Hæstiréttur á Indlandi hefur að beiðni flugmálayfirvalda á Indlandi farið fram á að 110 byggingar verði ýmist rifnar í burtu eða lækkaðar um nokkrar hæðir til að gera aðflug að flugvellinum öruggara og er gefin frestur upp á 2 mánuði til að verða við því.

Bæði er um að ræða nýjar byggingar sem hafa risið í nágreinni vallarins og einnig gamlar byggingar sem risu fyrir 50 árum síðan en flestar þeirra stóðust reglugerðir um hæð bygginga sem fyrrverandi flugmálayfirvöld samþykktu á sínum tíma en núna hefur komið í ljós að sú úttekt var ekki gerð með réttum hætti.

Farið var fram á í vor að margar af byggingunum verði að vera orðnar lægri fyrir ágúst

Þá hefur komið í ljós að starfsmenn þeirra flugmálayfirvalda, sem fóru áður fyrir flugmálum á Indlandi, gáfu út fölsuð skjöl til að samþykkja hæð bygginga í aðfluginu sem síðar kom í ljós að uppfylltu ekki kröfur um hindranir.

Krafist er að margar eldri byggingar verði lækkaðar sem nemur einum til 6 metrum á meðan nýrri byggingar, sem eru mun hærri, þurfa að lækka enn meira og þar af leiðandi þarf að taka nokkrar efstu hæðirnar í burtu.

Fyrirhugaðar aðgerðir munu hafa áhrif á marga íbúa þar sem sumar af byggingunum eru fjölbýlishús en íbúar í 10 byggingum komu saman á fundi sl. fimmtudag til að ræða vandamálið.

Þar var bent á að byggingarnar voru byggðar á sjöunda áratugnum þegar 20 ár voru liðin frá því að flugvöllurinn í Bombay var opnaður sem þá þjónaði 4 milljóna króna borg sem er 25% af þeim íbúafjölda sem búa í borginni í dag.

Íbúarnir segja að þeir hafa aldrei heyrt neitt frá stjórnvöldum varðandi hæð bygginganna - „Ég hef búið hérna frá árinu 1967. Af hverju eru þeir núna fyrst að komast að því að byggingin, sem ég bý í, sé of háreist“, segir einn íbúinn sem hefur áhyggjur af því að byggingin þoli ekki að verða lækkuð um 6 metra og spyr hver það er sem verður ábyrgur fyrir því ef hún hrynur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga