flugfréttir

Virgin flaug flugmanni til vinnu til Manchester með Boeing 787

- Kostnaðurinn nemur 1,4 milljón króna og var eina leiðin í stöðunni

20. september 2017

|

Frétt skrifuð kl. 17:36

Boeing 787 þota Virgin Atlantic

Breska flugfélagið Virgin Atlantic neyddist til þess á dögunum að lenda Dreamliner-þotu sinni sérstaklega í Manchester á leið sinni frá London Heathrow til Boston til þess að ferja flugmann til Manchester svo hann gæti flogið annarri þotu félagsins til New York.

Félagið var í komin alvarlegan vanda með að finna flugmann með réttindi á Airbus A330 breiðþotu í Manchester þar sem sá flugmaður, sem átti að fljúga vélinni, hringdi sig inn veikan fjórum tímum fyrir brottför.

Talsmaður Virgin Atlantic segir að félagið hafi reynt að finna flugmann á Airbus A330 þotu félagsins en aðeins einn var tiltækur en hann var staðsettur í London.

Airbus A330 breiðþota Virgin Atlantic

Leitað var leiða til að koma honum frá London til Manchester eins fljótt og hægt var til að koma í veg fyrir að félagið þyrfti að aflýsa fluginu.

Ekki var hægt að senda flugmanninn með lest þar sem mikill eldsvoði kom upp í timburgeymslu rétt hjá lestarteinunum norður af London og gengu því engar Virgin-lestar milli Euston-lestarstöðvarinnar og Manchester þann daginn.

Athugað var með möguleika á að senda flugmanninn með leigubíl frá höfuðstöðvum Virgin á Heathrow-flugvelli til Manchester en leigubílaferðin hefði tekið næstum 4 klukkustundir.

Þá var athugað með að senda flugmanninn með þyrlu eða lítilli flugvél en á endanum var ákveðið að senda hann með áætlunarflugi frá London til Boston og láta vélina koma við í Manchester sem var fljótasti kosturinn í stöðunni.



Farþegar, sem biðu eftir flugi til Boston, fengu skilaboð í hendurnar þar sem þeim var tilkynnt að flugið þyrfti að koma við í Manchester á leiðinni til Boston en það olli 2 tíma seinkun þar sem vélin þurfti að taka viðbótareldsneyti fyrir flugið vestur um haf fyrir brottför frá Manchester.

Kostnaðurinn við að koma flugmanninum til Manchester er talin nema um 1,4 milljón króna en fyrir utan viðbótareldsneyti þá þarf Virgin Atlantic einnig að greiða viðbótargjöld fyrir flugumferðarþjónustu, og þjónustugjöld á Manchester-flugvelli.

„Við viljum aldrei bregðast farþegum okkar þannig það var gert allt sem hægt var til að koma þeim til New York og þetta var það eina í stöðunni nema aflýsa fluginu“, segir talsmaður Virgin Atlantic, en slíkt hefði raskað ferðum hundruði farþega beggja megin Atlantshafsins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga