flugfréttir
Flugi aflýst á Bretlandseyjum á morgun vegna fellibyls
Mörgum flugferðum hefur verið aflýst á Írlandi á morgun
Flugvellir á Bretlandi og á Írlandi búa sig nú undir fellibylinn Ófelíu sem nálgast Bretlandseyjar frá Atlantshafi en loftþrýstingur fellibylsins mælist núna 965 millibör.
Ófelía mun fara yfir Írland seinnipartinn á morgun og er búist við að fellibylurinn muni
raska flugáætlun á öllum flugvöllum á Írlandi.
Búið er að fella niður nokkur flug um flugvöllinn í Dublin og hafa Aer Lingus, British Airways, Air
France, CityJet og KLM Royal Dutch Airlines aflýst flugi um Dublin.
Veðurfræðingar segja að mjög óvanalegt sé að fellibyljir fari svona austurlega yfir Atlantshafið
á þessum árstíma þar sem þeir halda sig flestir í Karíbahafinu eða vestarlega í Atlantshafinu
nær austurströnd Bandaríkjanna.
Talið er að Ófelía gæti valdið mesta óveðri í sögu Írlands í meira en hálfa öld en fellibylurinn flokkast núna sem 2. flokks fellibylur en hann mun ganga yfir til norðausturs og fara því næst yfir Skotland.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.