flugfréttir

Boeing 737 MAX kemur til greina fyrir Qantas

20. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:49

Qantas hefur í dag 67 Boeing 737 þotur í flotanum

Qantas er að íhuga að velja Boeing 737 MAX þoturnar til þess að endurnýja innanlandsflota félagsins.

Qantas hefur mikla reynslu af Boeing 737 en félagið hefur yfir sextíu 737-800 þotur í flota sínum og þá hefur félagið einnig haf Boeing 737-400 og 737-300 vélar.

Þá kemur fram að Qantas sé einnig að skoða möguleika á að panta Airbus A320neo sem kemur einnig til greina ásamt Boeing 737 MAX.

Qantas tók í gær við sinni fyrstu Dreamliner-þotu sem var flogið yfir Kyrrahafið frá verksmiðjum Boeing til Sydney en sú vél er fyrsta Boeing 787-9 þotan af þeim átta sem félagið pantaði á sínum tíma.

Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qantas, sagði í tilefni þess að félagið hafi mikinn áhuga á nýrri tegund farþegaþotu sem til stendur að hrinda í framkvæmd sem fengið hefur nafnið Boeing 797 þótt ekki hafi enn verið tekin formleg ákvörðun um framleiðslu á henni.

Flugfélagið ástralska hefur 118 þotur í flotanum en á aðeins von á 7 nýjum vélum sem eru Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-9 en að öðru leyti eru engar aðrar nýjar vélar væntanlegar í flotann eins og er.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga